Tap í erfiðum leik

0
690

Tottenham tapaði enn einum leiknum í ensku úrvalsdeildinni þegar þeir heimsóttu Stoke á Birtannia Stadium. Leiknum lauk með 2-1 sigri heimamanna í leik þar sem 2 leikmenn Tottenham fengu reisupassann. Mark Tottenham í leiknum skoraði Darren Bent en mörk Stoku skoruðu Higginbotham og Delap. Úrslitin þýða að Tottenham situr enn á botni deildarinnar með 2 stig.

     Ramos gerði sem fyrr breytingar á liðinu enda vanur því þegar evrópuleikir eru í sömu viku. Gomes stóð á milli stanganna þrátt fyrir að hafa orðið fyrir örlitlum meiðslum á æfingu í vikunni. Gleðifréttir dagsins voru þær að Hutton var kominn í liðið á ný eftir langa fjarveru vegna meiðsla. Í fyrsta sinn spiluðu þeir Hutton og Bale í bakvarðarstöðunum og á milli þeirra léku þeir Corluka og Woodgate sem miðverðir. Á miðjunni léku þeir Bentley, Jenas, Zokora, Modric og Lennon og framherji dagsins var Darren Bent. Á bekknum sátu þeir Cesar, Ekotto, Dawson, Pavlyuchenko, O´Hara, Huddlestone, Campbell.

     Ekki er annað hægt að segja en að leikurinn hafi verið ansi tíðindamikill og spennandi frá fyrstu mínútunum. Eftir 7 mínútna leik var Soares nálægt þvi að koma Stoke yfir eftir sendingu frá Delap en Gomes varði vel. Delap tók svo stuttu síðar eitt af sínum þekktu innköstum en hann á það til að taka innköst sem ná vel inn að markteignum. En í þetta skiptið braut Kitson á Gomes og því varð ekkert úr þeirri sókn. Á hinum enda vallarins gaf Jenas góða sendingu á Bent en Sonko var vel vakandi og kom í veg fyrir sókn Tottenham. En þegar rúmlega stundarfjórðungur var liðinn af leiknum urðu leikmenn Tottenham fyrir áfalli og leikurinn gjörbreyttist. Soares fékk sendingu fram völlinn og Bale misreiknaði sig örlítið og var Soares við það að sleppa einn í gegn. Bale gerði þá tilraun til að ná boltanum en það mistókst og Soares féll inni í teignum og dómarinn var ekki í vafa og dæmdi vítaspyrnu og gaf Bale þar að auki rautt spjald.  Higginbotham steig á vítapunktinn og skaut boltanum í netið framhjá Gomes, sem þó kastaði sér í rétt horn. Staðan því orðin 1-0 fyrir Stoke. En leikmenn Tottenham voru snöggir að svara fyrir sig. Aðeins 6 mínútum síðar tók Hutton á sprett upp völlinn og gaf boltann fyrir markið. Boltinn fór í leikmann Stoke og inn í teiginn þar sem Bent nýtti sér færið og skoraði. Staðan orðin jöfn 1-1. Leikmenn Tottenham elfdust við þetta þrátt fyrir að vera manni færri. Zokora leysti af í vinstri bakverðinum og hinir miðjumennirnir reyndu að styðja við Bent í framherjahlutverkinu. Undir lok fyrri hálfleiks fengu bæði Lennon og Jenas nokkuð góð færi en boltinn fór þó ekki inn. Staðan í hálfleik var því jöfn 1-1.

     Seinni hálfleikur byrjaði þó ekki vel fyrir leikmenn Tottenham. Strax eftir 7 mínútna leik voru Stoke komnir yfir á ný. Sidibe gaf fyrir markið frá vinstri kantinum og Delap var tilbúinn á fjarstönginni einn og óvaldaður og potaði boltanum í netið. Staðan því 2-1 fyrir Stoke. Markið sló leikmenn Tottenham dálítið út af laginu og Ramos kaus því að gera sína fyrstu skiptingu. Bentley fór af velli og inná kom Pavlyuchenko. Stuttu síðar fékk Modric gott færi en skot hann fór rétt yfir þverslánna. Eftir um klukkustundar leik þurfti að stöðva leikinn í nokkrar mínútur eftir að Hutton og Sorensen lentu í samstuði ásamt öðrum leikmanni Stoke. Sorensen þurfti svo að fara af velli sökum höfuðmeiðsla og inná kom Steve Simonsen í markið. Ekki var þetta eina sjúkrasaga dagsins. Corluka var ansi óheppinn þennan daginn. Fyrst fékk hann högg í rifbeinin þegar hann lenti í samstuði við Gomes. Stuttu síðar lentu þeir tveir svo aftur í samstuði sem leit öllu alvarlegra út. Leikurinn var stöðvaður í um 7 mínútur á meðan hlúð var að honum og á endanum var hann borinn út af strappaður á börur með súrefnisgrímu og meðvitundarlaus. Hann rankaði svo við sér þegar komið var upp í sjúkrabíl en hann var fluttur á sjúkrahús í myndatökur enda gífurlegt höfuðhögg sem hann fékk. Dawson kom inná fyrir Corluka en leikmenn Tottenham náðu sér aldrei á strik eftir það. Leikmenn Stoke tóku völdin og reyndu að bæta öðru marki við. Bæta þurfti 11 mínútum við venjulegan leiktíma sökum allra meiðslanna. Undir lok leiksins braut Woodgate svo á Soares inni í teig og dómarinn dæmdi aftur vítaspyrnu. Fuller tók spyrnuna en í þetta skiptið var heppnin með leikmönnum Tottenham. Fuller skaut í aðra stöngina og boltinn fór þaðan í hina stöngina og út í teiginn þar sem Delap náði boltanum og þrumaði honum í þverslánna. Til að kóróna slæman dag fékk Dawson svo að líta rauða spjaldið á lokamínútunum eftir glórulausa tæklingu á Fuller. Leiknum lauk með sigri Stoke 2-1 og staða Tottenham í deildinni orðin ansi slæm.

Lið Spurs: Gomes, Hutton, Corluka (Dawson), Woodgate, Bale, Bentley (Pavlyuchenko), Jenas, Zokora, Modric, Lennon, Bent. Ónotaðir varamenn: Cesar, Huddlestone, Ekotto, O´Hara.