Hreinsað til í brúnni

0
741

Tottenham tilkynnti nú í kvöld að Damien Comolli, Juande Ramos, Gus Poyet og Marco Alvarez hefði öllum verið sagt upp störfum og frá og með kvöldinu í kvöld. Clive Allen og Alex Inglethorpe munu stjórna liðinu í leiknum gegn Bolton á morgun.

Sömuleiðis var gefin út sú tilkynning að félagið hafi óskað eftir því við Portsmouth að fá að tala við Harry Redknapp varðandi stjórastöðuna og þeir hafi samþykkt þá beiðni en þó með trega.

Við þökkum þeim Comolli, Ramos, Poyet og Alvarez fyrir framlag þeirra til liðsins á þeim tíma sem þeir voru hjá félaginu.