Markaregn á White Hart Lane

0
687

Tottenham lagði Dinamo Zagreb á White Hart Lane í öðrum leik liðsins í riðlakeppni UEFA Cup. Leiknum lauk með stórsigri Tottenham 4-0 í leik þar sem Króatísku meistararnir áttu aldrei möguleika. Mörk Tottenham skoruðu Bent (þrenna) og Huddlestone en þetta var fyrsta þrenna Bent fyrir Tottenham. Liðið er því komið með 3 stig í riðlinum þegar tveimur af fjórum leikjum er lokið.

Harry gerði nokkrar breytingar á liðinu frá sigurleiknum gegn Liverpool. Liðið var skipað þeim Gomes í markinu og Hutton, Dawson, Woodgate og Bale í vörninni. Á miðjunni léku þeir Bentley, Huddlestone, Zokora, Modric og Lennon og Bent því einn frammi. Á bekknum sátu þeir Cesar, Gilberto, Ekotto, Campbell, Gunter, Dervite og Bostock en þeir tveir síðast nefndu hafa staðið sig vel með varaliðinu og fengu því sæti á bekknum hjá aðalliðinu.

     Leikmenn Tottenham mættu ákveðnir til leiks, fullir sjálfstraust eftir gott gengi í liðinni viku og hungraðir í stig í evrópukeppninni. Þeir sóttu stíft að marki Zagreb og áttu t.a.m. Huddlestone skot í hliðarnetið á 8.mínútu og Modric skot að markinu á 22.mínútu sem fór því miður í Dawson og framhjá. Leikmenn Dinamo fengu þó aukaspyrnu rétt fyrir utan teig en skot þeirra fór rétt framhjá markinu. En eftir hálftímaleik kom fyrsta markið. Modric hljóp upp að endamörkum vinstra megin við markið og gaf fyrir markið. Boltinn barst að Huddlestone sem rétt missti af honum en fyrir aftan hann var Bent sem náði til boltans og skaut boltanum í netið framhjá markverði Zagreb. Einungis þremur mínútum síðar skoraði hann á ný, annað mark liðsins. Huddlestone fékk boltann rétt fyrir utan teiginn og það leit út fyrir að hann ætlaði að þruma boltanum að marki. En í stað sendi hann boltann í gegnum vörnina frábærlega, beint á Bent sem renndi boltanum undir markvörð Dinamo. Staðan orðin 2-0 og Tottenham mun betri í leiknum. Leikmenn Dinamo fengu þó ágætis færi rétt undir lok fyrri hálfleiks en Gomes varði vel skot Balabans. Staðan í hálfleik var því 2-0 fyrir heimamenn.

     Leikmenn Tottenham ætluðu sér svo sannarlega ekki að sætta sig við þessi 2 mörk og komu tilbaka út á völlinn ákveðnir í að bæta við. Eftir tæpar 60 mínútur átti Bentley skot að marki sem Kelava í marki Zagreb varði vel í innkast. Úr innkastinu barst boltinn til Modric sem skaut föstu skoti að marki en færið var of þröngt enda nálægt endamörkum vallarins. En Kelava varði í horn og sú hornspyrna átti eftir að kosta þá. Bentley tók hornspyrnuna og gaf út á völlinn þar sem Huddlestone beið vel fyrir utan teiginn. Huddlestone tók vel á móti boltanum og skaut þrumuskoti að marki sem hafnaði neðst í netinu hægra megin. Glæsilegt mark frá Huddlestone og staðan orðin 3-0. Á 67.mínútu skoraði Bent svo mark eftir sendingu frá Huddlestone en markið var réttilega dæmt af sökum rangstöðu. Þremur mínútum síðar var hins vegar ekkert út á mark Bent að setja þegar hann fullkomnaði þrennu sína eftir enn eina góða sendingu frá Huddlestone. Þegar korter var til leiksloka gerði Harry sína fyrstu skiptingu þegar Modric fór af velli og fékk lof frá stuðningsmönnum og inná í hans stað kom Campbell. Fjórum mínútum síðar var svo komið að sögulegri stund hjá Tottenham þegar Redknapp gerði næstu breytingu á liðinu. Bentley fór af velli og inná í hans stað kom hinn efnilegi John Bostock og varð hann þar með yngsti leikmaðurinn til að spila fyrir aðalliðið, aðeins 16 ára og 295 daga gamall. Og hann nýtti sér svo sannarlega sinn fyrsta leik til að sýna hvað í honum býr og átti gott skot að marki sem fór rétt framhjá hægri stönginni. Þriðja skiptingin kom svo þegar 5 mínútur voru til leiksloka þegar Gunter kom inná í stað Woodgate. Fleiri mörk voru ekki skoruð og lauk leiknum því með 4-0 sigri Tottenham þar sem Bent og Huddlestone fóru á kostum ásamt góðri spilamennsku allra í liðinu.

Lið Spurs: Gomes, Hutton, Dawson, Woodgate(Gunter), Bale, Bentley(Bostock), Zokora, Huddlestone, Lennon, Modric(Campbell), Bent. Ónotaðir varamenn: Cesar, Gilberto, Ekotto, Dervite.