Tottenham lagði topplið Liverpool í æsispennandi leik þegar Liverpool kom í heimsókn á White Hart Lane. Leiknum lauk með 2-1 sigri heimamanna með mörkum frá Pavlyuchenko og sjálfsmarki Carragher en Dirk Kuyt skoraði mark Liverpool. Með sigrinum lyfti Tottenham sér af botni deildarinnar, að minnsta kost í einhvern tíma.
Redknapp gerði 4 breytingar á liði sínu frá jafnteflisleiknum gegn Arsenal fyrir leikinn gegn Liverpool. King, O´Hara, Bent og Zokora komu inn í stað Hutton, Bale, Jenas og Pavlyuchenko. Liðið var því þannig skipað að Gomes var í marki og vörnin skipuð þeim Corluka, King, Woodgate og Ekotto. Á miðjunni léku þeir Bentley, Huddlestone, Zokora, O´Hara og Modric og var Bent því einn frammi. Á bekknum sátu Cesar, Bale, Campbell, Gunter, Hutton, Lennon og Pavlyuchenko.
Leikurinn var fjörugur strax frá fyrstu mínútu og ekki leið langur tími þar til fyrsta mark leiksins kom. Á þriðju mínútu leiksins fengu Liverpool menn innkast á vallarhelmingi Tottenham og barst boltinn til Robbie Keane. Hann náði að leika á vörn Tottenham en missti boltann frá sér. Dirk Kuyt var réttur maður á réttum stað, náði boltanum og hamraði hann í netið frá hægri helmingi markteigsins. Staðan því orðin 0-1 fyrir toppliði deildarinnar og ljóst að róðurinn yrði þungur fyrir leikmenn Tottenham. Stuttu síðar munaði litlu að Bent skoraði sjálfsmark eftir að hann reyndi að hreinsa eftir hornspyrnu, boltinn fór í öfuga átt en Gomes náði að verja skotið. Fyrri hluta fyrri hálfleiks voru leikmenn Liverpool mun aðgangsharðari en náðu þó ekki að skapa sér mikið af færum. Leikmenn Tottenham neituðu að gefast upp enda sýndi það sig í leiknum gegn Arsenal að leikurinn er ekki búinn fyrr en dómarinn flautar til leiksloka. Tottenham menn sóttu í sig veðrið og komust aðeins betur inn í leikinn. Gott samspil milli Modric, Bentley og Corluka varð til þess að fín fyrirgjöf kom inn í teiginn en enginn náði til boltans. Modric átti svo skot að marki þegar stutt var til loka fyrri hálfleiks en Reina varði í marki Liverpool. Fleiri mörk voru ekki skoruð í fyrri hálfleik og staðan því 0-1 í hálfleik.
Redknapp vissi að breytinga var þörf í hálfleik ef liðið ætlaði að ná einhverjum stigum út úr þessum leik. Hann kaus því að breyta um leikskipulag og fara úr 4-5-1 í 4-4-2 og því var þörf á skiptingum. Hutton og Pavlyuchenko komu inná fyrir Ekotto og O´Hara. Corluka fór þá í vinstri bakvörðinn og Hutton í þann hægri og Pavlyuchenko smellti sér í framlínuna með Bent. Pavlyuchenko var ekki lengi að koma sér í færi og átti gott skot að marki en boltinn fór þó framhjá. En þá tóku leikmenn Liverpool völdin í um 15 mínútur og sóttu stíft að marki Tottenham. Á 50.mínútu gaf Kuyt fyrirgjöf inn í teiginn sem Gerrard náði og skaut að marki, boltinn fór í King á leið sinni á rammann og Gomes náði að ýta við boltanum með fingurgómunum sem varð til þess að boltinn fór í stöngina og leikmenn Spurs hreinsuðu frá. Þremur mínútum síðar áttu þeir svo skot í þverslánna eftir misskilning milli Gomes og King. Gomes gaf boltann á King en mjög svo lausa sendingu og Keane komst inn í sendinguna, gaf á Gerrard sem reyndi að vippa yfir Gomes en boltinn hafnaði ofan á þverslánni. Kuyt átti svo skot að marki sem fór framhjá og sömuleiðis fór skot Gerrard úr aukaspyrnu sem Alonso náði að skalla framhjá markinu. Gerrard og Riera áttu líka skot að marki en inn fór boltinn ekki. Það var svo á 69.mínútu að Tottenham jafnaði leikinn algjörlega gegn gangi leiksins. Bentley tók hornspyrnu og gaf inn í teiginn og þar stökk manna hæst Jamie Carragher og skallaði boltann í eigið net og staðan því orðin jöfn. Var þetta þriðja sjálfsmark hans á ferlinum gegn Tottenham. Staðan því orðin jöfn 1-1 og setti þetta leikmenn Liverpool aðeins út af laginu. Redknapp nýtti síðustu skiptinguna þegar korter var til leiksloka og fór Modric af velli og Lennon inná í hans stað. Pavlyuchenko fékk upplagt færi þegar 9 mínútur voru til leiksloka en skot hans fór yfir markið. En leikmenn Tottenham sýndu enn á ný að leikur er aldrei búinn fyrr en dómarinn flautar líkt og í liðinni viku. Bentley tók á sprett upp að vinstri helmingi vítateigs Liverpool manna og skaut þrumuskoti að markinu. Reina rétt náði að verja boltann en Bent náði frákastinu við endalínuna, gaf fyrir markið á Pavlyuchenko sem staðsettur var hægra megin í markteignum og hann kom boltanum snyrtilega framhjá Reina í markinu. Staðan orðin 2-1 fyrir heimamenn og stuðningsmenn fögnuðu gríðarlega. Aðstoðardómarinn gaf til kynna að 4 mínútum væri bætt við leikinn en raunin varð að 5 og hálfri mínútu var bætt við en Liverpool menn komu boltanum þó ekki framhjá Gomes og hirtu leikmenn Tottenham því öll stigin í þessum leik milli botnliðsins og toppliðsins. Sigurinn varð til þess að liðið lyfti sér af botni deildarinnar en verði önnur úrslit liðinu óhagstæð þá gæti liðið endað þar á ný eftir umferðina. Hins vegar saxaði liðið á forskot hinna liðanna og því allt orðið opið í neðri hluta deildarinnar.
Lið Spurs: Gomes, Corluka, Woodgate, King , Ekotto (Hutton), Bentley, Zokora, Huddlestone, O´Hara (Pavlyuchenko), Modric (Lennon), Bent. Ónotaðir varamenn: Cesar, Bale, Campbell, Gunter.






