Fyrsti útisigurinn á tímabilinu

0
781

Tottenham vann sinn fyrsta útisigur á tímabilinu þegar þeir heimsóttu Manchester City. Leiknum lauk með 2-1 sigri Tottenham, þar sem Bent skoraði bæði mörk Tottenham en Robinho skoraði mark City manna. Þrír leikmenn fengu að líta rauða spjaldið í leiknum, Fernandes og Dunne hjá City og Ekotto hjá Tottenham. Með sigrinum lyfti liðið sér af botni deildarinnar.

Harry gerði breytingu á liðinu frá leiknum gegn Dinamo Zagreb í vikunni, enda þétt leikjaprógrammið um þessar mundir. Gomes stóð þó sem fyrr á milli stanganna en vörnin var skipuð þeim Corluka, Woodgate, King og Ekotto. Á miðjunni léku þeir Bentley, Jenas, Huddlestone, Modric og Zokora og var Bent því einn frammi. Á bekknum sátu þeir Cesar, Dawson, Hutton, O´Hara, Pavlyuchenko, Campbell og Lennon.

     Leikmenn Tottenham mættu til leiks fullir sjálfstraust eftir gott gengi í síðustu leikjum. Fyrsta færi leiksins fékk Woodgate, þótt ótrúlegt megi virðast, en skot hans fór framhjá markinu. Modric fékk svo upplagt færi eftir 9 mínútna leik en skot hans fór naumlega framhjá markinu hægra megin. En það var svo gegn gangi leiksins að City menn komust yfir í leiknum. Eftir 15 mínútur fékk Vassell boltann hægra megin í vítateignum og skaut að marki en Gomes varði boltann. Hann náði hins vegar ekki að halda boltanum og barst boltinn fyrir fæturna á Robinho sem skoraði af öryggi. Staðan orðin 1-0 fyrir heimamenn. Ireland átti svo annað færi stuttu síðar sem Gomes varði vel. En á 26. mínútu fékk Fernandes, leikmaður City, sitt annað gula spjald í leiknum fyrir ljóta tæklingu á Bentley, og fékk þar af leiðandi reisupassann og því leikmenn City orðnir 10 á vellinum. Modric átti svo glæsilegt skot að marki sem Hart þurfti að hafa sig allan við til að verja. En þegar tæpur hálftími var liðinn af leiknum jafnaði Bent leikinn fyrir Tottenham. Modric sendi langan bolta fram völlinn og Dunne virtist ætla að taka við boltanum en missti hann frá sér og Bent, sem beið fyrir aftan hann, varð fyrri til boltans, hljóp að markinu og skoraði framhjá Hart. Staðan því orðin jöfn 1-1. Leikmenn Tottenham voru svo mun sterkari aðilinn það sem eftir lifði fyrri hálfleiks en þó voru ekki fleiri mörk skoruð í þeim hálfleik.

     Bæði lið komu til leiks í síðari hálfleik staðráðin í að skora og því spilaður góður sóknarbolti. Modric var stórhættulegur fyrir framan mark City manna, með eitraðar sendingar og hnitmiðuð skot, en inn vildi boltinn þó ekki. City menn vörðust vel og áttu svo nokkur hraðaupphlaup að marki Tottenham en Gomes var vel vakandi í markinu. En á 64.mínútu sendi Huddlestone langa sendingu fram völlinn á Jenas sem staðsettur var á mörkum vítateigsins fyrir framan mitt markið. Hann náði þó ekki að koma sér í skotstöðu þar sem varnarmenn City voru komnir að honum en hann gaf góða sendingu til hægri á Bent sem kom hlaupandi og átti ekki í vandræðum með að skora framhjá Hart og var þetta 11. mark hans á tímabilinu. Staðan því orðin 2-1 fyrir Tottenham. Stuttu síðar gerði Huddlestone svo tilraun að marki með einu af sínum föstu langskotum en í þetta skipti varði Hart. Á 71.mínútu gerði Harry sína einu skiptingu í leiknum, Modric fór af velli og Lennon kom inná í hans stað. Leikmenn City komust svo aðeins inn í leikinn og gerðu tilraun til að jafna. Robinho fékk 2 góð færi en Gomes var vel vakandi í markinu og varði vel. Á 83.mínútu fækkaði enn í liði City þegar Dunne fékk beint rautt spjald eftir að hafa brotið á Bent sem var kominn einn inn fyrir vörn City. Leikmenn Tottenham náðu þó ekki að nýta sér liðsmuninn og gera algjörlega út um leikinn. Leikmenn City reyndu áfram að skora jöfnunarmarkið og þegar rúm mínúta var til leiksloka fékk Ekotto sitt annað gula spjald í leiknum og þar með rautt. En hvorugu liðinu tókst að bæta við marki og því fóru leikmenn Tottenham tilbaka til London með öll þrjú stigin.

Lið Spurs: Gomes, Corluka, Woodgate, King, Ekotto, Bentley, Jenas, Huddlestone, Modric (Lennon), Zokora, Bent. Ónotaðir varamenn: Cesar, Dawson, Hutton, O´Hara, Pavlyuchenko, Campbell.