Sigur gegn Blackburn

0
699

Tottenham fór með sigur af hólmi þegar liðið mætti Blackburn á White Hart Lane í 14. umferð úrvalsdeildarinnar. Leiknum lauk með 1-0 sigri Tottenham þar sem Pavlyuchenko skoraði eina mark leiksins. Með sigrinum komst liðið upp úr fallsæti deildarinnar.

Harry stillti upp sterku liði enda hefur hann ávallt lagt áherslu á deildina eftir að hann tók við liðinu. Hann gerði þrjár breytingar á liðinu frá tapleiknum gegn Fulham og breytti einnig um leikskipulag og lagði upp með 4-4-2 í þessum leik. Gomes stóð á milli stanganna og vörnin fyrir framan hann var skipuð þeim Corluka, Woodgate, King og Ekotto. Á miðjunni léku þeir Lennon, Jenas, Huddlestone og Bentley og frammi þeir Pavlyuchenko og Bent. Á bekknum sátu þeir Cesar, Bale, Gunter, Dawson, Zokora, Campbell og O´Hara.

Leikmenn Tottenham voru staðráðnir í því að bæta fyrir tapið gegn Fulham og eftir aðeins 9 mínútna leik voru heimamenn komnir yfir. Lennon hljóp upp hægri kantinn með Olsson í eftirdragi, gaf svo á Pavlyuchenko þegar hann var kominn inn í teiginn og hann þakkaði fyrir sig með því að koma boltanum í netið. Staðan orðin 1-0 fyrir Tottenham. Fimm mínútum síðar munaði litlu að Pavlyuchenko næði að skora annað mark eftir aukaspyrnu. Bentley tók aukaspyrnuna og gaf inn í teiginn þar sem Pavlyuchenko hoppaði manna hæstur og skallaði boltann en hann hafnaði í stönginni. Lennon var stöðug ógn á hægri kantinum í leiknum og olli leikmönnum Blackburn miklum vandræðum. Og það var svo á 40.mínútu að Olsson fékk sitt annað gula spjald leiksins fyrir brot á Lennon og var því vikið af velli.  Og litlu munaði að Lennon næði að bæta við marki fyrir hálfleikshlé úr aukaspyrnunni sem liðið fékk eftir brottvikningu Olsson. En skot Lennon fór í Nelsen og þaðan í Robinson og framhjá markinu. Staðan í hálfleik var því 1-0 Tottenham í vil.

Í seinni hálfleik fengu leikmenn Tottenham nokkur færi til að gera út um leikinn. Á 54. mínútu átti Huddlestone langskot að marki sem fór rétt yfir og Woodgate náði ekki að skalla boltann framhjá Robinson í markinu eftir aukaspyrnu frá Bentley á 70.mínútu. Þegar korter var eftir af leiktímanum gerði Redknapp skiptingu, Pavlyuchenko fór af velli og Campbell kom inná í hans stað. Hann átti góða sendingu fyrir markið stuttu síðar en Bent rétt missti af boltanum. Hann átti einnig skalla að marki sem fór rétt framhjá þegar 5 mínútur voru eftir af leiknum. Á 86.mínútu kom O´Hara inná í stað Bentley en mörkin urðu ekki fleiri í leiknum og voru það leikmenn Tottenham sem hirtu öll stigin í leiknum. Með sigrinum fór liðið upp úr fallsæti.

Lið Spurs: Gomes, Corluka, Woodgate, King, Ekotto, Lennon, Jenas, Huddlestone, Bentley (O´Hara), Pavlyuchenko (Campbell), Bent. Ónotaðir varamenn: Cesar, Bale, Zokora, Gunter, Dawson.