Enn eitt tapið á St.James´ Park

0
615

Tottenham tapaði fyrir Newcastle á St James Park í síðasta leiknum fyrir jólatörnina. Leiknum lauk með 2-1 sigri Newcastle, en sigurmarkið kom í byrjun uppbótartímans í seinni hálfleik. Það var N’Zogbia sem kom Newcastle yfir en Modric jafnaði fyrir Tottenham. Duff kom svo inná sem varamaður á lokamínútunum og skoraði sigurmark leiksins.

Harry gerði nokkrar breytingar á liðinu. Í marki stóð þó Gomes sem fyrr. Vörnin var skipuð þeim Corluka, Dawson, King og Ekotto og á miðjunni léku þeir Bentley, Huddlestone, Zokora, Modric og Lennon. Frammi var því Pavlyuchenko. Á bekknum sátu þeir Cesar, Gunter, Bale, O´Hara, Boateng, Taarabt og Campbell.

 

Tottenham menn byrjuðu af fullum krafti og var það einna helst Lennon sem olli varnarmönnum Newcastle vandræðum. Á upphafsmínútum leiksins gerði hann stórgóða hluti þegar hann tók á sprettinn upp vinstri kantinn, lék á varnarmann Newcastle og gaf fyrir markið en þar var því miður engan samherja að sjá. Þegar um 12 mínútur voru liðnar af leiknum fengu leikmenn Tottenham nokkur föst leikatriði, þe. fyrst aukaspyrnu og svo hornspyrnur. Given varði eina þeirra og var fljótur að sparka boltanum fram völlinn þar sem N’Zogbia beið ásamt þremur leikmönnum Tottenham. Ekotto var sá eini sem fylgdi honum eftir og gerði sitt besta til að ná af honum boltanum en það tókst ekki og hann kom boltanum framhjá Gomes í markinu. Staðan orðin 1-0 fyrir heimamenn. N’Zogbia átti möguleika að skora annað mark á 26.mínútu en Gomes varði þann bolta. Þegar um hálftími var liðinn af leiknum sendi Dawson langa sendingu fram völlinn og Modric elti boltann, komst einn á móti Given og skoraði af öryggi framhjá honum. Leikmenn Newcastle höfðu gert ráð fyrir því að dæmd yrði rangstaða enda Pavlyuchenko vel fyrir innan, en hann snerti aldrei boltann og hafði því þannig séð ekki áhrif á leikinn. Markið stóð og staðan því orðin jöfn 1-1. Pavlyuchenko og Modric fengu ágætis færi undir lok fyrri hálfleiks en Given varði vel. Staðan í hálfleik var því jöfn 1-1.

 

Í upphafi seinni hálfleiks fengu leikmenn Tottenham aukaspyrnu sem Bentley tók og Dawson gerði tilraun til að skalla að marki. Hann hitti boltann þó illa og olli því ekki miklum usla í markteig Newcastle mann. Á hinum enda vallarins fengu N’Zogbia og Owen fín færi en varnarmenn Tottenham stóðu fyrir sínu ásamt Gomes í markinu. Þá tók við kafli þar sem menn spiluðu mikið sín á milli en náðu ekki að skapa sér færi þegar í vítateig andstæðinganna var komið. Huddlestone var nálægt því að skora þegar Lennon gaf boltann fyrir markið, en Given var á undan í boltann og Huddlestone féll við inni í teig. Dómarinn mat það þó svo að hann hefði verið að sýna leikaraskap og gaf honum gult spjald fyrir atvikið. Á 65.mínútu leiksins gerði Harry sína fyrstu og einu skiptingu í leiknum. Pavlyuchenko fór af velli og Campbell kom inná í hans stað. Owen fékk ágætis færi fyrir Newcastle en skot hans fór rétt yfir. Á síðustu tíu mínútum leiksins virtust leikmenn Tottenham mun líklegri til að skora og tryggja sér öll stigin þrjú. Lennon, Modric og Campbell fengu allir tækifæri til að skora en það tókst þó ekki. Í byrjun uppbótartímans náðu leikmenn Newcastle að koma boltanum í netið og hirða þar með öll stigin úr þessari viðureign. Leiknum lauk því með 2-1 sigri Newcastle.

 

Lið Spurs: Gomes, Corluka, Dawson, King, Ekotto, Bentley, Huddlestone, Zokora, Modric, Lennon, Pavyluchenko(Campbell). Ónotaðir varamenn: Cesar, Bale, Gunter, O´Hara, Boateng, Taarabt