Tottenham áfram í 32 liða úrslit UEFA Cup

0
531

Tottenham komst áfram í 32 liða úrslit UEFA Cup eftir að hafa gert jafntefli við Spartak Moskvu á White Hart Lane í síðasta leik riðlakeppninnar. Tottenham nægði eitt stig úr leiknum til að tryggja sér annað sætið í riðlinu og það tókst með mörkum frá Luka Modric og Tom Huddlestone en Dzuba hafði áður komið Spartak Moskvu í 2-0.

Harry gerði töluverðar breytingar á liðinu enda setti margt strik í reikninginn við val á liðinu. Meiðsli og veikindi ollu því að nokkrir gátu ekki spilað leikinn og auk þess eru Corluka og Pavlyuchenko ekki gjaldgengir í keppninni fyrir Tottenham. Liðið var því skipað svona: Gomes stóð á milli stanganna og vörnin var skipuð þeim Gunter, Dawson, Zokora og Gilberto. Á miðjunni léku þeir Bentley, O´Hara, Huddlestone, Modric og Bale og frammi spilaði Campbell. Á bekknum sátu þeir Cesar, Lennon, Ekotto, Bostock, Parrett, Dervite og Obika.

 

Leikmenn Tottenham héldu boltanum vel á upphafs mínútum leiksins en náðu þó ekki að skapa sér hættuleg færi. Eftir korters leik fengu leikmenn Spartak ágætis færi þegar Rizhkov skaut að marki en boltinn fór beint á Gomes. En eftir 22 mínútna leik komust leikmenn Spartak yfir með marki frá Dzuba. Bale gaf sendingu til baka í átt að markinu og misskilningur milli Gilberto og Gomes olli því að Dzuba komst inn í sendinguna og skoraði framhjá Gomes í markinu. Staðan því orðin 1-0 fyrir gestina. Leikmönnum Tottenham virtist brugðið við þessa stöðu og einungis tveimur mínútum síðar var Rizhkov nálægt því að bæta við marki en skot hans fór framhjá. Þegar um hálftími var liðinn af leiknum náðu leikmenn Tottenham loks að skapa sér hættuleg færi en tókst þó ekki að koma boltanum í netið. O´Hara átti góða fyrirgjöf fyrir markið en þar náði enginn að pota boltanum í netið. Huddlestone átti þrumuskot af löngu færi eins og honum einum er lagið en Pletikosa í marki Spartak varði vel. O´Hara fékk líka ágætis marktækifæri en boltinn hafnaði í hliðarnetinu. En Spartak menn nýttu sér hraðaupphlaupin sem sköpuðust þegar Tottenham menn sóttu að marki og á 33. mínútu skoruðu þeir annað mark sitt í leiknum og enn á ný var það Dzuba sem kom boltanum í netið. Undir lok hálfleiksins fékk Dawson færi eftir aukaspyrnu frá Bentley en skalli hans hitti ekki á rammann.

 

Redknapp gerði eina skiptingu í hálfleik, Lennon kom inná í stað Gilberto, Bale fór þá í bakvörðinn og Bentley og Lennon skiptust á að spila á köntunum. Campbell átti stuttu síðar skalla að marki sem Pletikosa varði vel. Dzuba hélt áfram að hrella vörn Tottenham og fékk enn eitt færið en skot hans fór beint á Gomes í þetta skiptið. Strax í næstu sókn sótti Lennon upp hægri kantinn og lék á varnarmenn Spartak áður en hann gaf fyrir markið beint á Modric, sem þakkaði fyrir sig með því að skora framhjá Pletikosa. Staðan orðin 2-1 og var þetta fyrsta mark Modric fyrir Tottenham. Leikmenn Tottenham fylltust bjartsýni eftir að fyrsta markið kom og léku mun betur. Og það liðu bara 6 mínútur þangað til að næsta mark kom þegar Huddlestone skallaði í netið á 74. mínútu. Bale gaf góða fyrirgjöf frá vinstri kantinum eftir gott samspil milli hans og Bentley og Huddlestone var vel staðsettur og skallaði boltann af öryggi í netið. Staðan orðin 2-2 og leikmenn Tottenham voru ekki á því að gefast upp. Þeir reyndu eins og þeir gátu að skora sigurmark leiksins en það tókst þó ekki. Bentley og Campbell áttu ágætis færi en inn vildi boltinn ekki. Leiknum lauk því með 2-2 jafntefli og Tottenham tryggði sér þar með áframhaldandi þátttöku í keppninni. Liðið endaði í öðru sæti í riðlinum og mætir því liði sem kemur úr meistaradeildinni.

 

Lið Spurs: Gomes, Gunter, Dawson, Zokora, Gilberto (Lennon), Bentley, Huddlestone, O´Hara, Bale, Modric, Campbell. Ónotaðir varamenn: Cesar, Ekotto, Bostock, Parrett, Dervite, Obika.