Chimbonda til Spurs á ný

0
746

Tottenham hefur komist að samkomulagi við Sunderland um kaup á Pascal Chimbonda. Chimbonda er stuðningsmönnum Spurs vel kunnugur enda einungis 6 mánuðir síðan hann var seldur frá Tottenham til Sunderland. Hann var þó óánægður með dvölina þar og hefur liðið því keypt hann til baka. Kaupverðið er ekki gefið upp en er talið vera það sama og Sunderland greiddi fyrir hann sl. sumar. Chimbonda mun veita Harry fleiri möguleika í vörninni enda getur hann spilað hvar sem er í vörninni þó að hans besta staða sé í hægri bakverði. Hann mun þó ekki geta tekið þátt í leik liðsins annað kvöld gegn Stoke þar sem skráning hans fór ekki í gegn í tæka tíð.

 

Við bjóðum Chimbonda velkominn til klúbbsins á ný.