Loksins Sigur

0
788

Stuðningsmenn Tottenham voru orðnir langeygir eftir sigri þegar kom að leik Tottenham og Stoke. Tottenham hafði ekki sigrað í deildinni síðan 8 desember þegar þeir sigruðu West Ham. Það var því ljóst að Harry Redknapp myndi stilla upp sínu sterkasta liði í leiknum og leggja allt undir til að ná sigri í fallbaráttunni. Leikurinn var spilaður á heimavelli Tottenham þar sem leikmenn Spurs hafa aðeins skorað 8 mörk í vetur í deildinni. Redknapp gerði 4 breytingar á liðinu frá bikarleiknum gegn Burnley. Carlo Cudicini þreytti frumraun sína í marki Tottenham í stað Alnwick. Auk þess duttu þeir Gunter, Huddlestone og Bale úr byrjunarliðinu í stað Woodgate, Defoe og Lennon

 

Leikurinn byrjaði gríðarlega fjörlega. Á 3. mínútu komst Modric í úrvalsfæri. Hann komst framhjá 3 varnarmönnum Stoke og lét vaða af 15 metra færi, en boltinn fór rétt framhjá. Aðeins tveimur mínútum síðar fá Stoke hornspyrnu, Shawcross nær að skalla að marki, en Ekotto er réttur maður á réttum stað og bjargar á línu. Eftir þetta færi Stoke bitu leikmenn Tottenham í skjaldarrendur og sóttu stíft að marki Stoke. Það var svo á 8. mínútu að það dró til tíðinda. Lennon fékk boltann á vinstri vængnum. Lennon stefndi í átt að markinu en Wilkinson fylgdi honum eftir. Lennon dregur boltann til hægri og skýtur boltanum fram hjá Sorensen í markinu og í netið. Stað þá orðin 1-0. Á 16. mínútu fær svo Stoke aukaspyrnu við hliðarlínuna á vallarhelmingi Tottenham. Etherington fyrrum leikmaður Tottenham tekur spyrnuna og hittir á kollinn á Shawcross sem skallar boltann rétt yfir markið. Á 21. mínútu dregur aftur til tíðinda. Eftir stutt spil þeirra Modric, Zokora og Pavlyuchenko fyrir utan vítateig Stoke sendir Pavlyuchenko hárfína sendingu í fætur Defoe sem þrumar honum í netið af 12 metra færi. Tottenham því komið 2-0.

Eftir þetta léku leikmenn Tottenham á alls oddi og á 24. mínútu fær Tottenham aukaspyrnu fyrir miðjuvallarins u.þ.b 22 metrum frá marki Stoke. Bentley tekur spyrnuna og skýtur að marki en Sorensen bjargar meistaralega þegar hann slæmir hönd í boltann og blakar honum yfir. Tottenham fær því hornspyrnu sem Bentley tók stutt og gaf á Modric sem sendi boltann hárnákvæmt á kollinn á Dawson sem skallar boltann auðveldlega í netið. Það var ljóst að stuðningsmönnum Tottenham leiddist ekki á pöllunum á White Hart Lane. Staðan orðin 3-0 eftir ríflega 24 mínútur. Leikmenn Spurs héldu áfram að ógna marki Stoke og á 27. mínútu gefur Lennon sendingu inn í teig þar sem Defoe nær góðu skoti sem Sorensen ræður ekki við, en Wilkinson bjargar á línu. Það var ljóst að Stoke var slegið af laginu. Tottenham stjórnuðu restinni af fyrri hálfleik og komu sér nokkrum sinnum í góð marktækifæri. Staðan í hálfleik því 3-0 og allt benti til þess að Tottenham myndi vinna stórsigur.

 

Stoke mættu ákveðnari til leiks í seinni hálfleik og meira jafnræði komst á með liðunum. Á 52. mínútu reyndi fyrst af einhverri alvöru á Cudicini í markinu þegar Beattie tekur aukaspyrnu yfir varnarmúr Tottenham. Cudicini var hinsvegar ekki í vandræðum með það og greip boltann örugglega. Á 56. mínútu fer Etherington inn að teignum frá vinstri vængnum. Hann sendir boltann á James Beattie sem hamrar boltann fram hjá Cudicini og í netið. Staðan því orðin 3-1. Það sem eftir lifði hálfleik komu bæði lið sér í ágætis færi af og til án þess að hafa erindi sem erfiði. Lokatölur leiksins því 3-1 sigur Tottenham í bráðfjörugum leik.

Byrjunarliðið: Cudicini, Corluka, Dawson, Woodgate, Ekotto, Bentley, Modric, Zokora, Lennon (Huddlestone ´91), Defoe, Pavlyuchenko (Campbell ´91)
Ónotaðir varamenn: Alnwick, Santos, Rocha, Bale

 

EKG