Stóra stundin nálgast…

0
661

Ný styttist óðum í úrslitaleik Carling bikarsins, en leikurinn fer fram á sunnudaginn kemur kl.15. Eftir að hafa lagt Newcastle, Liverpool, Watford og Burnley að velli er komið að úrslitaviðureigninni á Wembley gegn Manchester United. Í tilefni dagsins hvetur klúbburinn alla Spursara til að mæta á Ölver, Glæsibæ og styðja strákana ásamt því að eiga góðan dag saman. Salurinn opnar kl.12:30 og verður tilboð á veitingum gegn framvísun klúbbskírteinis. Vegna óviðráðanlegra aðstæðna hafa skírteini ekki borist til klúbbmeðlima en hægt verður að nálgast þau hjá stjórninni á Ölveri á leikdegi, og berast þau svo í pósti í næstu viku til annarra.

 

Mætum öll og styðjum liðið og eigum góðan dag saman. Áfram Tottenham!