Mikilvægur sigur gegn Hull

0
670

Það var mikið undir hjá báðum liðum þegar Hull tók á móti Tottenham á heimavelli sínum fyrir framan tæplega 25.000 áhorfendur. Tottenham er sem kunnugt er í fallbaráttunni á meðan Hull sem fór gríðarlega vel af stað í upphafi móts hafa verið í frjálsu falli niður töfluna. Fyrir leikinn hafði Hull aðeins náð tveimur stigum úr síðustu 8 leikjum liðsins. Tottenham hafði aðeins unnið einn leik á árinu í deildinni. Það var því svipað komið fyrir báðum liðum og ljóst að bæði liðin þurftu nauðsynlega á sigri að halda. Tottenham liðið sem er eina liðið í úrvalsdeildinni sem ekki hefur teflt fram óbreyttu liði milli leikja hélt í hefðirnar og voru tvær breytingar á liðinu sem mætti Arsenal, Dawson og Pavlyuchenko voru á bekknum í stað King og Bent.

Það var ljóst frá fyrstu mínútu að Hull ætlaði sér sigur í leiknum. Þeir réðu ferðinni á upphafsmínútunum og komu sér nokkrum sinnum í færi. Á fyrstu 7 mínútum leiksins höfðu þeir skapað sér 4 færi. Leikmenn Tottenham náðu að standa mestu pressuna af sér. Á 17 mínútu dregur svo til tíðinda. Tottenham fær hornspyrnu, boltinn berst á Aaron Lennon fyrir utan teig sem nær góðu skoti og skorar sitt þriðja mark á tímabilinu. Glæsilegt mark og Tottenham ná forustunni í leiknum þvert gegn gangi leiksins. Eftir markið hertu Hull menn enn pressuna og 10 mínútum eftir markið eða á 27 mínútu skora leikmenn Hull. Þeir fá hornspyrnu frá vinstri, boltinn berst inn í teig þar sem Cudicini mistekst að slá boltann burtu og berst því knötturinn á Michael Turner sem skorar. Staðan því orðin jöfn 1-1 og bæði mörkin skoruð eftir hornspyrnu.

Eftir fjörugan fyrrihálfleik sem Hull stjórnaði meira og minna var komið að síðari hálfleik. Líklega hefur Redknapp haldið þrumuræðu yfir leikmönnunum því Tottenham mætti miklu beittara til síðari hálfleiks. Tottenham réð lögum og lofum í upphafi síðari hálfleiks og áttu nokkur ágætis færi. Á 66 mínútu sendir Modric boltann inn í teig þar sem Vedran Corluka er mættur og nær góðum skalla en boltinn fer í slánna. Þetta var í 15 skiptið á leiktíðinni sem tréverkið bjargar Hull, oftar en nokkuð annað lið í deildinni. Á 72 mínútu gerir Harry Redknapp sína fyrstu skiptingu í leiknum þegar Darren Bent fer af leikvelli fyrir Roman Pavlyuchenko. Á 85 mínútu dregur svo til tíðinda. Ekotto æðir á harðaspretti upp vinstri vænginn og nær fyrirgjöf inn á teiginn þar sem Woodgate svífur yfir varnarmönnum Hull og skorar með frábærum skalla. Woodgate því búinn að skora fyrsta mark sitt á tímabilinu. Staðan því orðin 1-2. Á 87 mínútu gerir Redknapp sína aðra skiptingu í leiknum þegar Lennon kemur af velli og í hans stað kemur Didier Zokora. Tveimur mínútum síðar verður Redknapp að gera aðra skiptingu þegar Woodgate sem lenti í samstuði þarf að koma af velli með ljótan skurð á enninu, í hans stað kemur Michael Dawson sem fær að spila restina af leiknum gegn eldri bróður sínum í Hull liðinu honum Andy Dawson.  Leikmenn Hull sóttu stíft það sem eftir lifði leiks, en án árangurs og lokatölur leiksins því 1-2 Tottenham í vil.

Byrjunarlið: Cudicini, Corluka, King, Woodgate (Dawson), Ekotto, Lennon (Zokora), Jenas, Modric, Keane, Bent (Pavlyuchenko).
 Ónotaðir varamenn: Gomes, Chimbonda, Huddlestone, Bentley