Í vikunni hófust 32 liða úrslitin í Uefa cup þar sem Tottenham mætir Shakhtar Donetsk frá Úkraínu. Fyrri leikurinn fór fram í Úkraínu í talsverðu frosti á frekar slæmum velli. Harry kaus að taka með sér nokkuð breytt lið til Úkraínu þar sem liðið á erfiða törn framundan enda 6 leikir á 17 dögum, þar á meðal úrslitaleikurinn í Carling Cup. Hann kaus að gefa nokkrum ungum leikmönnum möguleika og fór alls með 7 stráka úr U-18 ára liðinu til Úkraínu í bland við nokkra menn úr byrjunarliðinu. Leiknum lauk þó með sigri heimamanna 2-0 og eiga því strákarnir erfitt verkefni fyrir höndum eftir viku þegar liðin mætast á ný á White Hart Lane í seinni leik viðureignarinnar.
Eins og áður sagði gerði Harry talsverðar breytingar á liðinu þar sem nokkuð var um meiðsli og nokkrir leikmenn ekki löglegir með liðinu í keppninni. Auk þess er erfið leikjatörn framundan og kaus Harry því að nýta sér leikmannahópinn og deila leikjunum niður á leikmenn. Af 7 ungum strákum úr U-18 ára liðinu sem fóru með liðinu til Úkraínu voru 5 þeirra á bekknum gegn Shaktar og einn í byrjunarliðinu, Dean Parrett. Liðið var skipað þannig að Gomes stóð á milli stanganna en vörnin var skipuð þeim Gunter, Dawson, Huddlestone og Chimbonda. Á miðjunni léku þeir Bentley, Jenas, Zokora, Parrett og Giovani og Campbell var því einn frammi. Á bekknum sátu þeir Jansson, Gilberto, Smith, Bostock, Mason, Obika og Bent.
Leikmenn Shakthar byrjuðu leikinn mun betur og náðu nokkurri yfirhönd í leiknum. Strax á 4. mínútu fengu þeir gott færi þegar boltinn fór óvart í Parrett og barst til Jadson en skot hans fór framhjá markinu. Eftir 20 mínútna leik komst Fernandinho í ágætis færi og fékk tvö skot að markinu en Dawson kom til bjargar í bæði skiptin. Gladkyy fékk einnig gott færi fimm mínútum síðar en hitti boltann illa. En leikmenn Tottenham reyndu að koma sér aðeins inn í leikinn og eftir um hálftíma leik fékk Giovani gott færi. Parrett sendi boltann á Giovani sem skaut að marki frá vinstri helmingi vallarins en markvörður Shaktar náði að verja vel í hliðarnetið. Það sem eftir lifði hálfleiks var lítið um hættuleg færi. Liðin reyndu að leika sín á milli og skapa sér færi en varnir beggja liða stóðu fyrir sínu. Leikmenn Shakhtar fengu þó ágætisfæri til að ná forystu í leiknum þegar um 3 mínútur voru til leiksloka en langskot þeirra fór beint á Gomes. Staðan var því jöfn í hálfleik 0-0.
Engin breyting var gerð á liðunum í hálfleik. Eftir aðeins 2 mínútna leik komu heimamenn sér í ágætis færi þegar William náði að renna boltanum fyrir markið en þar var þó enginn samherji og Chimbonda hreinsaði frá. Á hinum enda vallarins komst Jenas í ákjósanlegt færi þegar hann tók á sprettinn eftir góða sendingu frá Giovani. Markvörður Shaktar var kominn langt út úr markinu og reyndi Jenas því að vippa boltanum yfir hann en hitti boltann ekki nógu vel. Leikmenn Tottenham virtust ná að spila betur saman eftir því sem leið á leikinn en þurftu þó að verjast vel hættulegum sóknum heimamanna. Á 68. mínútu gerðu bæði lið sína fyrstu breytingu og kom Darren Bent inná fyrir Giovani, Campbell fór þá á hægri kantinn og Bentley á þann vinstri. Stuttu síðar komst Parrett í ágætis stöðu inni í teignum og reyndi að gefa boltann fyrir markið á Campbell en markvörður Shakhtar var vel vakandi og náði til boltans. Þegar um 76 mínútur voru liðnar af leiknum fengu Shakhtar menn aukaspyrnu rétt fyrir utan vítateig. Áður en spyrnan var tekin gerðu þeir skiptingu og vildi það svo til að leikmanninum sem kom inná tókst að skora í sinni fyrstu snertingu. Boltinn var sendur inn í teiginn þar sem varnarvinna leikmanna Tottenham klikkaði og var Seleznov einn og óvaldaður inni í markteig. Gomes kom út í boltann en Seleznov var fyrri til og skallaði boltann í netið. Gomes fékk högg á höfuðið í leiðinni og fékk nokkra aðhlynningu en kaus að halda áfram. Staðan því orðin 1-0 fyrir heimamenn og stuðningsmenn Shakhtar kættust mjög. Leikmenn Tottenham virtust ekki ætla að svara fyrir sig og neyddust til að taka á honum stóra sínum til að halda aftur af Shakhtar mönnum. En á 88. mínútu tókst Jadson þó að bæta við öðru marki fyrir heimamenn eftir að hafa leikið á nokkra varnarmenn Tottenham. Staðan því orðin 2-0 fyrir Shakhtar. Eftir markið gerði Harry breytingu á liðinu, Parrett fór af velli eftir góða frammistöðu í sínum fyrsta leik og inná kom annar ungur strákur, John Bostock. En leikmönnum Tottenham tókst ekki að minnka muninn og lauk leiknum með 2-0 sigri heimamanna og er því erfitt verkefni fyrir höndum fyrir leikmenn Tottenham þegar liðin mætast í næstu viku á White Hart Lane.
Lið Spurs: Gomes, Gunter, Dawson, Huddlestone, Chimbonda, Bentley, Jenas, Zokora, Parrett (Bostock), Giovani (Bent), Campbell. Ónotaðir varamenn: Jansson, Gilberto, Smith, Mason, Obika.
SAJ






