Spurs í úrslitin

0
793

Tottenham gerði jafntefli í síðasta leik sínum í riðlinum gegn Real Sociedad 1-1. Mido gerði markið. Þar með er Tottenham komið í úrslit gegn Leon frá Frakklandi. Sá leikur fer fram á sunnudagsmorgun klukkan 8 að íslenskum tíma. Leikurinn verður sýndur á Eurosport.

Það verður að segja að Real var betri aðilinn framan af og það var hálfpartinn gegn gangi leiksins að við skoruðum. Markið var samt fínt. Einn leikmanna Real var svo rekinn af velli undir lok fyrri hálfleiks. Þrátt fyrir það komu þeir út í seinni hálfleik með miklum látum og jöfnuðu strax. Eftir það náði Spurs yfirhöndinni og átti nokkur færi sem ekki nýttust. Má þar nefna að Defoe tókst ekki að klára nokkur allgóð færi. Við héldum svo út til loka og þar sem Boca vann Sundown í hinum leiknum aðeins 3-1 urðum við efstir í riðlinum á flestum skoruðum mörkum. Þessi framistaða er mjög góð og mart jákvætt við leik okkar manna þá vantar enn mörk frá miðjunni. Það sem hefur m.a. batnað er að við erum að fá fleiri stoðsendingar frá miðjumönnum sem er fínt.

Liðið:  Fulop, Kelly, Edman, Davenport, Gardner, Tainio (Marney 87), Carrick (C), Mendes (Reid 56), Routledge (Lennon 74), Defoe (El-Hamdaoui 81), Mido (Keane 67). Varamenn: Cerny, Burch, Bunjevcevic, King, Yeates, Huddlestone, Kanoute.