Sigur í öðrum leiknum

0
708

Tottenham vann Sundown nokkuð örugglega 3-1 í öðrum leik liðsins í Friðarbikarkeppninni í Suður-Kóreu. Keane gerði fyrsta markið á 34. mínútu efir undirbúning Huddlestone. Annað markið kom á 51. mínútu og var þar að verki Kanoute en hann var réttur maður á réttum stað þegar markmaðurinn

varði skot Routledge sem var kominn einn á móti markmanninum en boltinn hrökk til Kanoute. Tottenham komst svo í þrjú núll sex mínútum síðar þegar Keane skoraði sitt annað mark. Sundown náði að minnka muninn á 78. mínútu. Tottenham er nú með 4. stig eftir tvo leiki.

Liðið: Spurs: Cerny, Kelly, Edman, Davenport, Gardner, Routledge, Huddlestone (Marney, 81), Mendes (Tainio, 45), Reid (Lennon, 64), Keane, Kanoute (El Hamdaoui, 78). Varamenn: aðrir í hópnum.