Jafnt í fyrsta leik Friðarbikarsins

0
675

Totteham lék fyrsta leik sinn í Friðarbikarnum á laugardaginn.  Andstæðingurinn var Boca Juniors frá Argentínu. Þeir eru nýbúnir að ljúka sínu tímabili og því í góðu formi.

Boca tók forustuna á annari mínútu og er óhætt að segja að okkar menn hafi ekki alveg verið viðbúnir. Þeir komust þó smám saman inn í leikinn og náðu oft góðum samleik þó markinu hafi ekki mikið verið ógnað. Það var svo Defoe sem jafnaði eftir góðan undirbúning Tainio á 26. mínútu. Miko kom svo Tottenham yfir í 32. mínútu eftir góðan samleik Marney, Tainio, Mendes og Defoe sem átti sendinguna á Mido. Boca tókst svo að knýja fram jafntefli í lokin en þeir skoruðu sitt annað mark á
71. mínútu og þar við sat.

Liðið: Cerny, Marney, Bunjevcevic, King (Huddlestone 75), Dawson (Gardner 62),
Tainio, Carrick, Mendes, Reid (El-Hamdaoui 77), Defoe (Routledge 64),
Mido (Keane 80). Varamenn: Fulop, Burch, Edman, Davenport. Lennon, Kanoute

DEILA
Fyrri fréttNæstu leikir
Næsta fréttSigur í öðrum leiknum