Metár á WHL

0
817

Tottenham Hotspur er nú þegar búið að setja félagsmet í úrvalsdeildinni eftir að hafa ekki fengið á sig mark í síðustu 5 leikjum í deildinni á WHL. Síðast náðum við að spila 5 leiki án þess að fá á okkur mark tímabilið 1986-87. Það þýðir að liðið hafi ekki spilað jafn marga leiki á heimavelli án þess að fá á sig mark í 22 ár. Takist liðinu að halda hreinu gegn WBA um helgina, þurfum við að fara aftur til ársins 1970 til að finna jafn góða leikjahrinu á WHL hvað þetta varðar. Félagsmetið varðandi lengstu hrinu liðsins án þess að fá á sig mark á heimavelli á hinsvegar  8 leikir sem var sett árið 1921. Við erum einnig á höttunum eftir öðru félagsmeti hjá Tottenham. Það verður að teljast stórkostlegt ef við sláum það eftir það sem undan er gengið.

Tottenham á nefnilega mjög raunhæfan möguleika á að setja félagsmet hvað varðar fæst mörk fengin á sig á heimavelli. Tottenham er nú aðeins búið að fá á sig 9 mörk á WHL í deildinni, sem kemur eflaust mörgum á óvart eftir að hafa átt einhverja verstu byrjun í sögu félagsins.  Árið 1921 fengu liðsmenn Tottenham á sig 11 mörk á heimvelli í næst efstu deild. Það er met sem stendur enn þann dag í dag. Hinsvegar er met Tottenham í efstudeild, sem hlýtur að vera viðmiðið, 13 mörk fengin á okkur (þá voru reyndar spilaðir 42 leikir á tímabili, 38 nú). Það er því ansi raunhæfur möguleiki á að Tottenham slái það met í ár, haldi leikmenn Tottenham uppteknum hætti á heimavelli gegn WBA um helgina og svo gegn Man City í næst síðustu umferðinni á WHL.
Til gamans má einnig geta þess að Tottenham hefur ekki tapað á heimavelli frá því í nóvember á síðasta ári. Þannig að hvernig sem á heimavallarárangur liðsins er litið á þessu tímabili, hefur liðið staðið sig feikilega vel.  

 

 

EKG