Manchester United 5 – Tottenham 2

0
628

Það var heldur betur markaleikur sem fór fram á Old Trafford, heimavelli Manchester Utd. um síðustu helgi. Fyrir leikinn var búist við hörku leik þar sem Tottenham hafði sett stefnuna á 7. sætið, á meðan United er í titilbaráttunni. Stuðningsmenn Tottenham gengu um hnarreistir eftir að Howard Webb hafði flautað til loka fyrri hálfleiks. En Adam var ekki lengi í paradís og að leik loknum gengu niðurlægðir leikmenn Tottenham af vellinum eftir að hafa verið teknir í karphúsið í seinni hálfleik.
Harry Redknapp gerði tvær breytingar á liðinu sem mætti Newcastle um síðustu helgi. Michael Dawson er meiddur og því kom Ledley King í hans stað. Þá var Huddlestone færður á bekkinn til að greiða leið Wilson Palacios sem nú var leikfær eftir leikbann. Aðeins tveir sóknarmenn voru til taks fyrir leikinn þar sem Pavlyuchenko var meiddur, Frazier Campbell mátti ekki spila gegn United og Defoe fékk leyfi frá leiknum. Defoe fékk leyfi frá leiknum þar sem bróður hans hafði látið lífið daginn fyrir leikinn. Við sendum að sjálfsögðu Defoe hughreystingar og samúðarkveðjur.

Fyrri hálfleikur fór vel af stað og var nokkurt jafnræði með liðunum mestan hluta fyrri hálfleiks. Bæði lið áttu hættuleg færi og leikurinn virtist opinn og skemmtilegur á að horfa. Á 29 mínútu leit fyrsta markið dagsins ljós þegar Corluka á sendingu inn í teig þar sem Darren Bent er mættur til að taka við boltanum og setur hann laglega í netið fram hjá markverði United. Stuðningsmenn Tottenham voru ennþá að fagna markinu þegar annað mark Tottenham kemur. Þá á Lennon fyrirgjöf inní teig þar sem Modric er einn og óvaldaður á fjærstöng og smellhittir boltann. Staðan var því orðin 0-2 eftir 32 mínútna leik. Man. U. áttu einnig góð færi í fyrri hálfleik án þess að koma boltanum í netið. Ronaldo átti t.a.m frábært skot úr aukaspyrnu rétt fyrir utan teig, en Gomes átti líklega markvörslu tímabilsins fyrir Tottenham þegar hann varði skotið með tilþrifum.

Leikmenn Tottenham báru því höfuðið hátt þegar flautað var til loka fyrri hálfleiks. Stuðningsmenn Tottenham veltu því fyrir sér hvort við værum loksins að fara vinna Man U. eftir margra ára bið. Ferguson stjóri United gerði frábæra breytingu á liði sínu í hálfleik þegar hann setti Tevez inná í stað í Nani. Manchesterliðið var því mætt með stórskotaliðið inn í seinni hálfleikinn þar sem Ronaldo, Berbatov, Tevez og Rooney voru stöðug ógn. Á 57. mínútu dró hinsvegar til tíðinda. Howard Webb, arfaslakur dómari leiksins gaf þá United vítaspyrnu á silfurfati eftir að hann taldi Gomes hafa fellt Carrick innan vítateigs. Augljóst er þó á öllum myndum að Gomes hafi ekki brotið af sér, einnig sagði Webb dómari eftir leikinn að honum hafi orðið á mistök þegar hann dæmdi vítaspyrnuna. Ronaldo tók spyrnuna og skoraði af öryggi. Við þetta hreinlega hrundi leikur Tottenham og United sóttu án afláts. Rooney skoraði svo jöfnunarmark United á 67 mínútu þegar hann fór framhjá Corluka og skoraði úr þröngu færi framhjá Gomes. Það tók svo United aðeins eina mínútu í viðbót að skora næsta mark. Þar var á ferðinni Ronaldo sem skoraði sitt annað mark. Stuðningsmenn beggja liða trúðu vart sínum eigin augum. Leikmenn Tottenham voru gjörsamlega andlausir inná vellinum á meðan leikmenn Utd. léku við hvern sinn fingur. Þremur mínútum eftir þriðja mark United bætti Rooney sínu öðru marki við og 4 marki United. Leikmenn United unnu boltann á eigin vallarhelmingi og Rooney brunaði upp völlinn í skyndisókn og skaut boltanum framhjá Gomes, Woodgate reyndi að bjarga boltanum á línu og menn munu þræta um það hvort honum hafi tekist það eða ekki, þar sem það sást hvergi augljóslega að boltinn hafi farið yfir línuna. Dómarinn gerði því kannski rétt í að láta vafaatriði falla með sóknarliðinu og dæmdi mark. Það var svo fyrrum leikmaður Tottenham Dimitar Berbatov sem nuddaði salti í sár Tottenhammanna með því að skora 5 og síðasta mark leiksins á 79. mínútu.  Þar með var rekinn lokanaglinn í niðurlægingu Tottenham í síðari hálfleik.

 

Byrjunarliðið: Gomes, Corluka, Woodgate, King, Ekotto, Lennon, Palacios, Jenas, Modric (Bale 86), Bent, Keane (Huddlestone 87).

DEILA
Fyrri fréttWembley Cup í sumar
Næsta fréttMetár á WHL