Forráðamenn Tottenham Hotspur hafa sent út þá tilkynningu að þeir hafi ákveðið að hafna boði um að taka þátt í varaliðsdeildinni (Barclays Premier Reserve League )á komandi tímabili. Þess í stað mun verða sett mikil áhersla á að koma leikmönnum á lánssamning til liða í alvöru deildarkeppni. Auk þess verður nú auðveldara að skipuleggja leiki varaliðsins með hliðsjón af leikjum aðalliðsins. Í stað þess að leikir varaliðsins fari fram á fyrirfram ákveðnum dögum, verður nú aðeins komið á vináttuleikjum auk þess sem liðið gæti tekið þátt í styttri keppnum sem varaliðið hefur hingað til oftast hafnað. Forráðamenn Tottenham hafa gert grein fyrir þessari afstöðu sinni til varliðsdeildarinnar.
Þetta hafði Harry Redknapp framkvæmdarstjóri Tottenham um málið að segja.
„Ég held bara að þetta gefi þér þann möguleika að koma á leikjum þegar og þar sem þú vilt í stað þess að vera bundinn af fyrirframákveðinni leikjaröðun, sem getur stundum verið erfitt í kringum leiki aðalliðsins.
Með því að standa fyrir utan deildina getum við búið til okkar eigin leikjauppröðun sem hentar að okkar þörfum. Það eru alltaf lið að leita af leikjum, þannig að þetta mun henta okkur betur.
Unglingarnir þurfa að fara á láni til annarra liða og spila eins og þeir gerðu á síðasta tímabili. Það var frábær reynsla fyrir þá stráka, svo við munum leitast við að gera það sama á næstu leiktíð."






