Tottenham hefur staðfest þátttöku sína í Barcley‘s Asia Trophy í Peking í sumar. Keppnin sem hóf göngu sína árið 2003 hefur verið á tveggja ára fresti. Þrjú lið úr ensku úrvalsdeildinni taka þar þátt ástamt liðum gestgjafana. Tottennham hefur þátttöku þann 29 júlí gegn nágrönnum sínum í West Ham. Þar sem þessi keppni er útsláttarkeppni munu aðrir leikdagar ráðast eftir gengi liðsins. Þriðja liðið frá Englandi er Hull City. Það mun því vera skemmtilegt fyrir bræðurna Michael Dawson (Tottenham) og Andy Dawson (Hull) að keppa við hvorn annan hinumegin á hnettinum.
Þetta verður í fyrsta sinn sem við tökum þátt í þessari keppni, en við komum þó inn með talsverða reynslu þar sem Harry Redknapp á titil að verja. Hann vann þessa keppni einmitt með Portsmouth árið 2007. Harry hafði þetta um keppnina að segja:
„Okkur hlakkar öllum til að keppa í Asíu. Þetta er frábært tækifæri fyrir aðdáendur okkar í Kína að koma og horfa á uppáhalds leikmennina sína spila.
Ég virkilega naut þess síðast að taka þátt í keppninni með Portsmouth fyrir tveimur árum í Hong Kong. Þetta voru frábærir dagar hvað varðar undirbúning fyrir komandi leiktíð og ég var virkilega ánægður með allt. Þetta er frábær keppni og allt vel skipulagt. Allt var í fyrsta klassa þarna."






