Mark tímabilsins?

0
747

Nú hefur til gamans verið sett af stað könnun hér vinstra megin á síðunni um mark tímabilsins að ykkar mati. Mörg skemmtileg og stórglæsileg mörk voru skoruð á tímabilinu en fimm mörk hafa verið tilnefnd og er það nú í ykkar höndum að velja það mark sem ykkur þótti besta markið á tímabilinu. Sunnudaginn 12.júlí verður svo tilkynnt hvaða mark heillaði stuðningsmenn Tottenham á Íslandi mest.

 

Tilnefningarnar eru eftirfarandi:

 

1. Mark David Bentley gegn Arsenal 29. október

 – David Bentley skoraði eftirminnilegt mark gegn klúbbnum sem hann hóf ferilinn hjá þegar Tottenham heimsótti Arsenal á Emirates Stadium í október. Hann opnaði markareikninginn í þessum bráðfjöruga leik sem lyktaði með 4-4 jafntefli.  Á 13. mínútu barst boltinn til Bentley á miðjum vellinum og hann ákvað að skjóta að markinu þar sem Almunia var staðsettur rétt fyrir utan eigin markteig. Boltinn hafnaði í netinu, glæsilegt mark af 37 metra færi.

 

2. Mark Tom Huddlestone gegn Dinamo Zagreb 6. nóvember

–  Tom Huddlestone skoraði glæsilegt mark í leik gegn Dinamo Zagreb á White Hart Lane í Uefa Cup í nóvember, í leik þar sem Tottenham fór með stórsigur af hólmi 4-0. Á 59. mínútu, þegar staðan var orðin 2-0 Tottenham í vil, fékk liðið hornspyrnu. Bentley stillti boltanum á við hornstöngina og á meðan kom Huddlestone sér fyrir rétt fyrir utan teig eins og hann á stundum til að gera. Bentley gaf boltann á Huddlestone sem þrumaði honum í netið af 27 metra færi eins og honum einum er lagið.

 

3. Mark Jermaine Jenas gegn Arsenal 29. október

–  Jermaine Jenas skoraði mikilvægt mark í stórskemmtilegum leik grannaliðanna í London í október sl. Leiknum lauk með 4-4 jafntefli en staðan var ekki vænleg fyrir Tottenham þegar venjulegur leiktími var að líða. Þegar einungis mínúta var eftir af venjulegum leiktíma var staðan 4-2 fyrir Arsenal. Arsenal menn voru með boltann við á miðjum velli þegar Clichy rann til og missti boltann til Jenas. Hann tók á sprett í áttina að marki Arsenal og þegar hann var kominn að vítateigslínu Arsenal manna skaut hann boltanum efst í vinstra horn marksins framhjá Almuna. Glæsilegt mark og þýðingarmikið því markið efldi trú leikmanna að leiknum væri ekki lokið og náðu þeir svo að jafna leikinn í uppbótartíma.

 

4. Mark Aaron Lennon gegn Middlesbrough 4.mars

–  Aaron Lennon skoraði glæsilegt mark gegn Middlesbrough á White Hart Lane og bætti svo við öðru marki síðar í leiknum. Fyrra mark hans er tilnefnt sem mark tímabilsins. Boltinn barst til Lennon á hægri kantinum. Hann gaf boltann á Keane og hljóp svo í áttina að markinu. Keane var vel vakandi, sendi boltann í gegnum klofið á Huth til Lennon sem var kominn einn á móti markverði og kláraði færið glæsilega með því að koma boltanum í netið við nærstöngina.

 

5. Mark Luka Modric gegn Chelsea 21. mars

–  Luka Modric skoraði eina mark leiksins í viðureign Tottenham og Chelsea á White Hart Lane í mars sl.  Staðan var jöfn 0-0 í hálfleik en í síðari hálfleik tók Lennon á sprett upp hægri kantinn, fór framhjá Ashley Cole og gaf góðan bolta inn í teiginn. Þar náði Modric boltanum og skaut föstu skoti með hægri fæti neðst í vinstra horn marksins. Glæsilegt mark sem tryggði liðinu sigur gegn Chelsea.