Góður leikur gegn Bournemouth

0
642

Tottenham lék annan æfingaleik sinn á undirbúningstímabilinu gegn Bournemouth í kvöld. Eins og í leiknum gegn Exeter á miðvikudagskvöldið fengu sem flestir að spila og var þetta góð æfing fyrir strákana. Leiknum lauk með sigri Tottenham 3-0 líkt og á miðvikudagskvöldið. Markaskorarar kvöldsins voru þeir Keane, Defoe og Palacios.

Harry stillti upp góðri blöndu af reynslu og nýliðum í byrjunarliði kvöldsins. Í markinu var Cudicini og vörnin var skipuð þeim Chimbonda, Dawson, Dervite og Rose. Á miðjunni léku þeir Bentley, Huddlestone, Boateng og Modric og frammi voru þeir Keane og Bent.

 

Það voru leikmenn Bournemouth sem áttu fyrstu hættulegu marktilraun leiksins og kom hún eftir aðeins 5 mínútna leik. Bournemouth menn fengu hornspyrnu og gáfu inn í teiginn þar sem Cudicini náði að slá boltann út. Frákastið barst til Bournemouth manna og skutu þeir að marki en Dawson var réttur maður á réttum stað og náði að kasta sér í veg fyrir boltann og hindra að hann færi í netið. Það tók leikmenn Tottenham dálítinn tíma að venjast vallaraðstæðum en þessi völlur er gjörólíkur því sem menn eiga að venjast. Á 15. mínútu þurfti Bentley að fara af velli eftir að hann lenti í samstuði við Cummings og kom Livermore inná í hans stað. Hann fór þá í vinstri bakvörðinn, Rose færði sig á vinstri kantinn og Modric fór yfir á þann hægri.  Leikmenn Tottenham áttu nokkur skot að marki en á 27.mínútu náðu þeir loksins að koma boltanum í net Bournemouth manna. Bent sendi boltann á Keane sem renndi honum framhjá Jalal í markinu og staðan orðin 1-0 fyrir gestina. Undir lok fyrri hálfleiks fengu svo Bournemouth menn ágætis færi en Cudicini var vel vakandi í markinu.

 

Sömu sögu var að segja í hálfleik í þessum leik líkt og á miðvikudagskvöldið, töluvert var um skiptingar en þó héldu Cudicini og Huddlestone sæti sínu sem og Livermore sem kom inná sem varamaður í fyrri hálfleik. Liðsuppstilling í seinni hálfleik var því á þennan veg. Í markinu var Cudicini sem fyrr og vörnin fyrir framan hann var skipuð þeim Hutton, Corluka, Livermore og Ekotto. Á miðjunni léku þeir Lennon, Huddlestone, Palacios og O´Hara og frammi spiluðu þeir Defoe og Pavlyuchenko.

 

O´Hara átti gott skot að marki strax í upphafi seinni hálfleiks en Jalal varði vel. En þegar rúmlega 10 mínútur voru liðnar af seinni hálfleik náðu leikmenn Tottenham að auka forystuna. Livermore átti gott spil upp völlinn og gaf svo boltann á Defoe sem var ekki í vandræðum með að skora framhjá Jalal. Staðan orðin 2-0. Og aðeins 12 mínútum síðar þurfti Jalal enn á ný að hirða boltann úr netinu. Defoe átti gott skot að marki sem Jalal varði, en hann náði ekki að halda boltanum og Palacios náði frákastinu og skoraði af öryggi. Staðan orðin 3-0. Bæði Defoe og Huddlestone áttu svo góð tækifæri til að bæta við mörkum, Defoe átti þrumuskot að marki sem endaði í þverslánni og Huddlestone átti gott skot að marki sem Jalal varði framhjá stönginni. En leiknum lauk með sigri Tottenham 3-0.

 

Næsti leikur Tottenham er gegn Peterborough á þriðjudagskvöldið næstkomandi.

 

SAJ