Þriðji sigurinn í röð

0
660

Tottenham heimsótti Peterborough United í þriðja leik sínum á undirbúningstímabilinu. Harry stillti upp nokkuð sterku liði en þó fengu nokkrir ungir og óreyndir að spreyta sig hluta af leiknum. Leiknum lauk með stórsigri Tottenham 4-0 þar sem Bent, Defoe, Modric og Pavlyuchenko skoruðu mörkin.

Byrjunarlið kvöldsins var nokkuð sterkt en hinn ungi og efnilegi Dervite fékk þó sæti í byrjunarliðinu. Liðið var þannig skipað: Cudicini var í markinu og vörnin fyrir framan hann var skipuð þeim Chimbonda, Corluka, Dervite og Ekotto. Á miðjunni léku þeir Lennon, Palacios, Jenas og O´Hara og frammi voru þeir Bent og Pavlyuchenko. Á bekknum sátu Jansson, Huddlestone, Livermore, Boateng, Modric og Defoe.

 

Leikmenn Tottenham byrjuðu mun betur og fór leikurinn að mestu fram á vallarhelmingi Peterborough manna. Strax á 5.mínútu vildu leikmenn Tottenham fá vítaspyrnu eftir að Jenas var felldur, en dómarinn taldið brotið hafa átt sér stað rétt fyrir utan teiginn og dæmdi því aukaspyrnu. Stuttu síðar var Pavlyuchenko nálægt því að skora þegar hann fékk góða sendingu frá O´Hara á fjærstöngina en skalli hans fór framhjá markinu. Þegar rúmlega 20 mínútur voru liðnar af leiknum átti Bent gott skot að marki en Lewis í marki Peterborough varði vel. Eina hættulega færi Peterborough í fyrri hálfleik kom þegar tæpur hálftími var liðinn af leiknum og endaði sú sókn með marki, en dómarinn var búinn að flauta rangstöðu áður en boltinn hafnaði í netinu og markið því dæmt af. Pavlyuchenko og Jenas áttu svo ágætisfæri að marki en það var loks á 35. mínútu að leikmönnum Tottenham tókst loks að komast yfir í leiknum. Jenas gaf góða sendingu á Bent sem kláraði færið af öryggi. Staðan orðin 0-1 gestunum í vil og þannig voru hálfleikstölur.

 

Harry gerði nokkrar breytingar í hálfleik líkt og í hinum leikjunum en þó var ekki gjörsamlega skipt um lið. Huddlestone, Boateng, Modric og Defoe komu inná í stað Corluka, Jenas, O´Hara og Bent. Pavlyuchenko fékk gott færi til að bæta við marki en skot hans fór í hliðarnetið. Þegar um klukkustund var liðin af leiknum áttu Peterborough menn gott færi en Cudicini varði vel. Stuttu síðar þurfti Lewis að hirða boltann úr netinu hjá sér. Modric gaf góða sendingu á Defoe sem skaut að marki. Lewis varði skotið en náði ekki að halda boltanum og Defoe náði frákastinu og skoraði. Staðan orðin 0-2. Harry gerði skiptingu á 66. mínútu, Boateng fór af velli og Livermore kom inná í hans stað. Á 68. mínútu var það svo Modric sjálfur sem skoraði 3. mark leiksins eftir fyrirgjöf frá Chimbonda. Þegar rúmlega korter var eftir af leiknum komust Peterborough menn í gott færi en Cudicini stóð sig vel á milli stanganna. Leikmenn Tottenham bættu svo við 4. markinu á 75.mínútu leiksins og var það besta mark kvöldsins. Lennon hljóp upp hægri kantinn og gaf á Pavlyuchenko sem staðsettur var rúmlega 20 metra frá markinu. Þaðan hamraði hann boltann í netið, glæsilegt að opna markareikning sinn með svona marki. Jansson fékk svo nokkrar mínútur í markinu en hann kom inná í stað Cudicini á 83.mínútu leiksins. Defoe og Livermore fengu svo báðir góð færi til að bæta mörkum við en það tókst ekki og lokatölur 4-0.

 

Næstu leikir liðsins eru á Wembley Cup næstkomandi föstudag og sunnudag.

 

Lið Spurs: Cudicini(Jansson), Chimbonda, Corluka(Huddlestone), Dervite, Ekotto, Lennon, Palacios, Jenas(Boateng(Livermore)), O´Hara(Modric), Pavlyuchenko, Bent(Defoe).

 

SAJ