Fyrstu kaup sumarsins

0
642

Tottenham tilkynnti í dag fyrstu kaup liðsins í félagaskiptaglugganum þetta sumarið. Tottenham hefur fest kaup á tveimur ungum leikmönnum frá Sheffield United, Kyle Naughton og Kyle Walker. Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp en talið er að samtals hafi Tottenham greitt um 8 milljónir punda fyrir þá. Naughton er tvítugur hægri bakvörður en getur einnig spilað í vinstri bakverðinum. Walker er 19 ára gamall varnarmaður sem getur spilað hvar sem er í varnarlínunni, bæði miðvörð og bakverði. Naughton spilar strax í kvöld æfingaleik með varaliði félagsins en Walker er að keppa með U-19 ára landsliði Englands um þessar mundir.

 

Við bjóðum Naughton og Walker velkomna til félagsins.