Tottenham vann Asíumótið

0
653

Tottenham vann sinn fyrsta titil á árinu á föstudaginn þegar liðið lagði Hull að velli 3-0 í Barclays Asian Trophy. Aðeins fjögur lið voru skráð til keppni og því dugði sigur á West Ham á miðvikudaginn til að koma okkur í úrslitaleikinn. Harry gerði nokkrar breytingar á liðinu sem mætti West Ham fyrir í vikunni. Gomes, Chimbonda, Jenas og Keane komu inn í liðið fyrir Cudicini, Hutton, O‘Hara og Pavlyuchenko. Leikurinn fór fram í Peking kl 12:30 að íslenskum tíma. Lið Hull hafði fyrir leikinn unnið Beijing Gouan í vítaspyrnukeppni 4-3 eftir að staðan hafði verið 1-1 að loknum venjulegum leiktíma.

 

Mínútu þögn var ákveðin fyrir leikinn til að heiðra minningu Sir Bobby Robson sem lést eftir harða baráttu við krabbamein. Að vel heppnuðu þagnarbindindi loknu var flautað til leiks. Strax frá upphafi var ljóst að bæði lið ætluðu sér að vinna leikinn. Það voru þó Tottenham sem virtist hafa undirtökin frá upphafi án þess að skapa sér nein hættuleg færi fyrsta korterið. Fyrsta skot á markið átti Lennon á 15. mínútu en Warner í marki Hull varði vel. Tveim mínútum síðar, eða á 17. mínútu leit fyrsta mark dagsins ljós. Modric átti þá drauma sendingu yfir hálfan völlinn og boltinn datt beint á Keane sem var kominn einn innfyrir, og náði að leggja boltann meistaralega fyrir sig með bringunni og skora fram hjá Warner. Staðan eftir 17 mínútur því 1-0. Hull náði fyrst skoti á mark Tottenham eftir 35 mínútna leik. Dean Marney, fyrrum leikmaður Tottenham átti þá gott skot á markið sem Gomes varði meistaralega. Tottenham fór inn í hálfleikinn með mjög verðskuldaða 1-0 forustu.

Seinni hálfleikur byrjaði svipað og sá fyrri. Bæði lið reyndu að sækja en Tottenham var þó með yfirhöndina. Líkt og í fyrri hálfleik áttu hvorugt liðið hættuleg færi fyrsta korterið. Tottenham skipti hinum unga og efnilega Kyle Naughton inná fyrir Jenas á 62. mínútu. Fyrsta markverða færið í seinni áttu leikmenn Hull á 63. og 64. þegar leikmenn Hull áttu tvær hornspyrnur sem enduðu með úrvalsfærum. Gomes var hinsvegar vel á verði og varði í bæði skiptin meistaralega með tilþrifum. Á 68 mínútu dró svo til tíðinda við mark Hull þegar Defoe slapp einn í gegn og í stöðunni einn á móti markmanni var Defoe felldur af markverði Hull og dómarinn dæmdi umsvifalaust vítaspyrnu. Það var fyrirliðinn Robbie Keane sem tók spyrnuna og sendi Warner í markinu í rangt horn og skoraði með öryggi. Staðan því 2-0 og Robbie Keane með bæði mörkin.
Á 88. mínútu kom síðan náðarhöggið fyrir Hull City þegar Naughton átti flotta sendingu á Lennon á fjærstönginni sem gerði engin mistök og lagði boltann framhjá Warner í markinu. Lokatölurnar því 3-0 og Tottenham orðinn meistari keppninnar.

Liðin: Gomes, Chimbonda (Hutton 78), Corluka, Huddlestone, Ekotto, Lennon, Palacios (Livermore 82), Jenas (Naughton 62), Modric, Keane, Defoe.

 

EKG