Kínaferðinni lauk með tapi

0
635

Eftir sigur á Barclays Asian Trophy mótinu í Pekíng hélt Tottenham liðið til Hong Kong þar sem það mætti liði Suður-Kína í æfingaleik. Harry hafði gefið það út eftir leikinn gegn Hull að hann myndi leyfa ungu strákunum að spreyta sig í leiknum gegn Suður-Kína og einnig þeim leikmönnum sem minna höfðu spilað og gefa þannig þeim sem mikið höfðu spilað smá hvíld og stóð hann við orð sín. Ferðalagið til Hong Kong varð þó ekki jafnánægjulegt og í Pekíng því liðið tapaði leiknum gegn Suður-Kína með tveimur mörkum gegn engu.

 

Harry stóð við orð sín um að leyfa þeim sem lítið höfðu spilað að byrja þennan leik. Liðið var því stillt upp þannig: Cudicini var í markinu og varnarlínan var skipuð þeim Hutton, Livermore, Chimbonda og Rose. Á miðjunni léku þeir Naughton, Jenas, O´Hara og Bostock og frammi þeir Pavlyuchenko og Obika. Á bekknum sátu Gomes, Huddlestone, Ekotto, Corluka, Palacios, Keane, Defoe, Modric og Lennon.

 

Leikurinn fór rólega af stað en mjög heitt var í veðri og rakinn mikill, aðstæður sem leikmenn Tottenham voru ekki mjög vanir. En Suður-Kína menn fengu sitt fyrsta færi þegar um átta mínútur voru liðnar af leiknum en varnarmenn Tottenham gerðu vel í að hindra að boltinn færi í netið. Eftir um korters leik kom fyrsta færi Tottenham en þá þrumaði Pavlyuchenko boltanum í átt að marki af löngu færi en markvörður Suður-Kína varði vel. Stuttu síðar munaði litlu að Obika næði til fyrirgjafar Rose en boltinn var aðeins of hár fyrir Obika. Bostock, Hutton og Pavlyuchenko fengu svo allir góð færi til að ná forystu í leiknum en markvörður Suður-Kína átti stórleik í markinu og varði vel. Ekkert mark var skorað í fyrri hálfleik og máttu Suður-Kína menn þakka markverði sínum að enn var jafnt þegar flautað var til hálfleiks.

 

Harry gerði þrjár breytingar á liðinu í hálfleik, Gomes, Keane og Defoe komu inná fyrir Cudicini, Hutton og Jenas. Liðinu var þá þannig stillt upp að Gomes var í markinu og vörnin skipuð þeim Naughton, Livermore, Chimbonda og Rose. Á miðjunni léku þeir Obika, Keane, O´Hara og Bostock og frammi léku þeir Defoe og Pavlyuchenko. En það voru Suður-Kína menn sem skoruðu fyrsta mark leiksins eftir 52. mínútna leik. Chan skaut að marki af 23 metra færi og smellhitti boltann efst í horn marksins en Gomes var ekki langt frá því að verja skotið. En hann náði aðeins að snerta boltann með fingurgómunum og því var fyrsta markið komið, 1-0 fyrir heimamönnum. Defoe og Keane fengu svo báðir færi til að jafna leikinn en skot þeirra fóru yfir markið. Það var svo á 68.mínútu að umdeilt atvik átti sér stað. Fei, leikmaður Suður-Kína, hljóp á Livermore inni í teignum og féll við en Livermore náði til boltans. Tottenham mönnum til mikillar óánægju dæmdi dómarinn víti á Tottenham og úr því skoraði fyrirliði Suður-Kína, Haiquiang. Staðan orðin 2-0. Harry gerði breytingu á liðinu strax eftir vítaspyrnuna, Obika fór af velli og Lennon kom inná í hans stað. Suður-Kína menn fengu svo hættulegt færi þegar um korter var eftir af leiknum en Gomes varði vel. Modric kom inná þegar 82. mínútur voru liðnar af leiknum í stað Pavlyuchenko. Leikmenn Tottenham reyndu að minnka muninn en markvörður Suður-Kína var vel vakandi í markinu og því urðu mörkin í leiknum ekki fleiri. Var þetta síðasti leikur Tottenham í þessari æfingaferð og heldur liðið nú aftur til Englands og spilar einn æfingaleik nk. sunnudag gegn Olympiakos áður en tímabilið hefst eftir hálfan mánuð.

 

Lið Spurs: Cudicini (Gomes), Hutton (Keane), Livermore, Chimbonda, Rose, Naughton, Jenas (Defoe), O´Hara, Bostock, Pavlyuchenko (Modric), Obika(Lennon).

 

SAJ