Tottenham heimsótti Doncaster Rover á Keepmoat Stadium í 2. umferð Carling bikarsins. Harry var búinn að gefa í skyn að þeir leikmenn sem lítið hafa spilað fengju tækifæri í leiknum og stóð hann við orð sín. Hann gerði 7 breytingar á liðinu sem sigraði West Ham um helgina en það kom ekki að sök. Leikmenn Tottenham buðu upp á sannkallaða markaveislu og unnu sannfærandi sigur 1-5. Mörkin skoruðu þeir Huddlestone, O´Hara, Bentley, Crouch og Pavlyuchenko og er liðið því komið í næstu umferð bikarkeppninnar.
Harry gerði 7 breytingar á liðinu frá sigurleiknum gegn West Ham og gaf því mörgum af þeim leikmönnum sem mikið hafa spilað að undanförnu tækifæri á smá hvíld. Liðið var þannig skipað að Cudicini var í markinu og vörnin fyrir framan hann var skipuð þeim Naughton, Corluka, Bassong og Hutton. Á miðjunni léku þeir Bentley, Huddlestone, O´Hara og Giovani. Framherjapar kvöldsins var skipað þeim Pavlyuchenko og Crouch. Á bekknum sátu Button, Rose, Boateng, Lennon, Palacios og Defoe.
Leikmenn Doncaster byrjuðu leikinn af miklum ákafa og áttu tvö stórhættuleg færi á fyrstu fimm mínútum leiksins. Hayter fékk boltann inni í teig og var einn og óvaldaður og skaut að marki en Cudicini varði meistaralega. Stuttu síðar fékk Oster gott skot að marki en aftur varði Cudicini vel. En á níundu mínútu leiksins gerðu Doncaster menn mistök í vörninni og Huddlestone nýtti sér það, stal boltanum og þrumaði honum í netið. Staðan orðin 0-1 fyrir Tottenham. Einungis tveimur mínútum síðar voru leikmenn Tottenham búnir að bæta öðru marki við. Bentley gaf góða sendingu inn í teiginn, boltinn barst til O´Hara sem skaut flottu skoti í hægra horn marksins. Staðan orðin 0-2 Tottenham í vil. Leikmenn Doncaster voru nú ekki á því að gefast upp þó á móti blési og áttu tvö ágætis færi en Cudicini var vel vakandi. Pavluychenko og Giovani áttu báðir hálffæri á hinum enda vallarins en það var svo á 37.mínútu að leikmenn Tottenham náðu að bæta við þriðja markinu. Bentley tók hornspyrnu og gaf boltann inn í teig. Þar náði Crouch til boltans og skallaði hann í mark Doncaster manna. Staðan orðin 0-3 Tottenham í vil og þannig voru hálfleikstölur.
Fljótlega í upphafi seinni hálfleiks átti Guy, leikmaður Doncaster, þrumuskot að marki en boltinn fór rétt yfir þverslánna. O´Hara fékk tækifæri á hinum enda vallarins en skot hans fór framhjá sömuleiðis. Á 53. mínútu dró svo til tíðinda á ný þegar Giovani gaf góða sendingu fyrir markið á Bentley, hann tók við boltanum og skaut honum snyrtilega framhjá Smith í markinu. Staðan orðin 0-4 fyrir gestina. Stuttu síðar átti Bentley góða sendingu á Crouch inni í teig en skalli hans fór rétt yfir. Þegar um klukkustund var liðin af leiknum gerði Harry sína fyrstu skiptingu. Bassong fór af velli og Boateng kom inná í hans stað. Huddlestone fór þá í miðvörðinn og Boateng á miðjuna. Leikurinn byrjaði ekki vel fyrir Boateng því dómarinn dæmdi víti á hans fyrstu snertingu í leiknum, en boltinn fór í hönd hans inni í vítateignum. Woods, leikmaður Doncaster, steig á vítapunktinn og skoraði af öryggi framhjá Cudicini. Staðan orðin 1-4. Stuttu síðar munaði litlu að Doncaster menn næðu að bæta við marki en skot Guy hafnaði í þverslánni og litlu munaði að Hayter náði frákastinu en boltinn fór rétt framhjá honum. Þegar rúmar tuttugu mínútur voru til leiksloka náði Pavlyuchenko að bæta við verðskulduðu marki, en hann var búinn að vera talsvert öflugur í sóknarleik liðsins. Boateng gaf góða stungusendingu inn fyrir á Pavlyuchenko og hann var ekki í vandræðum með að koma boltanum framhjá Smith í markinu. Staðan 1-5 Tottenham í vil. Huddlestone fékk svo fljótlega smá hvíld því Harry skipti Rose inná í hans stað, Hutton fór þá í miðvörðinn og Rose í vinstri bakvörðinn. Þegar tíu mínútur voru til leiksloka kom svo síðasta skipting Tottenham, Cudicini fór af velli og David Button, þriðji markvörður liðsins, fékk að spreyta sig það sem eftir lifði leiks. En mörkin urðu ekki fleiri og lauk því leiknum með stórsigri Tottenham, 1-5 og er því liðið komið í 3.umferð bikarkeppninnar. Dregið verður í næstu umferð í hádeginu nk. laugardag.
Lið Spurs: Cudicini (Button), Naughton, Corluka, Bassong (Boateng), Hutton, Bentley, Huddlestone (Rose), O´Hara, Giovani, Pavlyuchenko, Crouch. Ónotaðir varamenn: Lennon, Palacios, Defoe.
SAJ






