Besta byrjun Tottenham í 49 ár

0
1071

Tottenham sat sem fastast í toppsætinu þegar þeir mættu West Ham á Upton Park í Lundúnum. West Ham hafði byrjað leiktíðina á sigri og litu ansi vel út í 2-0 sigri. Þeir voru því staðráðnir í að gefa grönnum sínum frá norður London ekkert eftir á heimavelli sínum. Liðsmenn West Ham höfðu fengið skelfilegar fréttir nokkrum dögum áður þegar fréttir þess efnis að Calum Davenport varnarjaxl West Ham og fyrrum leikmaður Spurs lægi þungt haldinn á gjörgæslu eftir hrottafengna hnífstunguárás.  Heilladísirnar svífa heldur betur ekki yfir Upton park þessa dagana því skömmu eftir leik fengu West Ham þær fréttir að Dean Asthon leikmaður þeirra sem var meiddur eftir fótbrot sem hann hlaut fyrr í sumar með landsliðinu, myndi líklega aldrei aftur spila knattspyrnu. Heppnin var heldur ekki beinlínis með leikmönnum West Ham í leiknum, þá sérstaklega ekki Carlton Cole.

     Harry Redknapp mætti sigurreifur með lið sitt á Upton Park. Hann gerði tvær breytingar á liðinu sem vann Hull 1-5 fyrr í vikunni. Gomes í markinu meiddist í leiknum gegn Hull og varði því Carlo Cudicini markið og Alan Hutton vék fyrir konungnum í vörninni Ledley King.

 

Leikurinn fór rólega af stað og í raun kom fyrsta færið í leiknum ekki fyrr en eftir ríflega 17 mínútna leik. Þá átti Scott Parker skot að marki Tottenham sem Cudicini átti í vandræðum með en náði að verja. Hættulegasta færi fyrri hálfleiks kom þó upp við mark West Ham þegar King átti frábæran skalla á markið eftir aukaspyrnu Luka Modric. Boltinn hafnaði í þverslánni til allra lukku fyrir Green í markinu sem stóð frosinn á línunni og fylgdist með. Bæði lið áttu nokkur skot að marki eftir þetta, en engin afgerandi færi. Það virtist jafnræði með liðunum en Tottenham kannski örlítið meira ógnandi.

 

Síðari hálfleikur hafði hinsvegar upp á töluvert meira fjör að bjóða en sá fyrri, og eftir aðeins fjögurra mínútna leik kom fyrsta mark leiksins. Carlton Cole fékk boltann fyrir utan teig þar sem hann snéri baki í markið og snéri sér í skotinu og þrumaði boltanum framhjá Cudicini í markinu. Sannkallað draumamark og líklega mark umferðarinnar.  Adam var þó ekki lengi í paradís og 5 mínútum síðar breyttist brosið í skeifu hjá Cole. Tottenham hafði sótt að marki West Ham en ekkert varð úr þeirri sókn og varnarmenn West Ham knöttinn á Cole sem var staddur einn og óvaldaður á miðjum vellinum. Cole ákvað hinsvegar að gefa boltann til baka en sá ekki Defoe sem lúrði bakvið varnarmenn West Ham og úr varð glæsileg stungusending hjá Cole á Defoe sem skoraði auðveldlega fram hjá Green í markinu.  5 mínútum síðar eða á 59. mínútu vildu leikmenn West Ham fá vítaspyrnu þegar Ekotto fór utan í Jimenez innan teigs með þeim afleiðingum að Jimenez virtist missa jafnvægið og féll til jarðar. Clattenbourg dómari lét hinsvegar leikinn halda áfram og bað Jimenez að rísa á fætur við lítinn fögnuð heimamanna. Fátt markvert gerðist næstu 20 mínúturnar þó leikurinn hafi verið opinn og fjörlegur. Á 79. mínútu dró svo til tíðinda. Lennon sem hafði leikið Spector grátt allan leikinn kórónaði niðurlægingu hans þegar hann stal boltanum af tám hans rétt fyrir utan vítateig West Ham og tók á sprett inn í vítateig West Ham þar sem hann náði góðu skoti sem hafnaði í marki West Ham. Bæði lið héldu áfram að sækja og áttu bæði ágætis færi en lokatölur leiksins 1-2 fyrir Spurs.
Tottenham því enn á toppnum eftir 3 umferðir og þetta er því besta byrjun liðsins í 49 ár eða allt frá því að við settum met yfir bestu byrjun liðs í efstu deild með sigri í fyrstu 11 leikjunum. Það met stendur enn.

 Liðið: Cudicini, Corluka, Bassong, King, Ekotto, Lennon, Palacios, Huddlestone, Modric (O‘Hara 88), Keane( Crouch 80), Defoe (Naughton 94)

 

 

EKG