Redknapp og Defoe verðlaunaðir

0
641

Harry Redknapp og Jermain Defoe voru í dag verðlaunaðir fyrir góða frammistöðu í ágústmánuði. Harry var valinn þjálfari mánaðarins í deildinni en hann hefur stýrt liðinu til sigurs í 4 fyrstu leikjum tímabilsins en betri byrjun hefur liðið ekki átt í 49 ár, eða síðan tímabilið 1960-61, þegar liðið vann 11 fyrstu leikina og vann deildina í lok tímabils.  Defoe var valinn leikmaður ágústmánaðar en hann hefur verið sjóðheitur í upphafi tímabils og skorað 4 mörk í deildinni, en einnig hefur hann verið á skotskónum fyrir landslið Englendinga.

 

Við óskum þeim báðum að sjálfsögðu til hamingju með þennan árangur.