Nú þegar landsleikjahléið er yfirstaðið og leikmenn komnir aftur til liða sinna. Er rétt að rifja aðeins upp framistöðu þeirra með landsliðunum, bæði á miðvikudaginn síðasta og um síðustu helgi.
4-6 september.
Jermain Defoe skoraði mark fyrir Englendinga sem mættu Slóvenum í vináttuleik. Defoe sem er sjóðheitur um þessar mundir minnti þar með á sig í von um að stimpla sig inn sem byrjunarliðsmann í liðinu.
Robbie Keane skoraði sitt fertugasta landsliðsmark fyrir Íra sem lögðu Kýpur í 8. riðli undankeppni HM. Þar með ná Írar að halda öðru sætinu í riðlinum á eftir Ítalíu og eiga góða möguleika á að komast á HM á næsta ári.
Roman Pavlyuchenko skoraði tvö af þremur mörkum Rússa sem sigruðu Liechtenstein 3-0 í fjórða riðlinum. Pav skoraði bæði mörkin úr vítaspyrnum í fyrri hálfleik.
Giovani Dos Santos fór hreinlega á kostum með Mexíkó um helgina þegar þeir mættu Kosta Ríka. Glæsimark Gio og tvær stoðsendingar í 3-0 sigri liðsins tryggði honum nafnbótina „maður leiksins“.
Wilson Palacios var vikið af velli þegar Hondúras vann Trinidad & Tobaco 4-1
Alan Hutton spilaði allar 90 mínúturnar þegar Skotar unnu Makedóníu í undankeppni HM 2-0.
Vedran Corluka og Niko Kranjcar spiluðu með Króötum sem unnu Hvítrússa 1-0 í undankeppni HM. Corluka var vikið af velli þegar hann fékk að líta sitt annað gula spjald. Það þýddi að hann yrði í leikbanni þegar Króatar mættu Englendingum nokkrum dögum síðar.
Sebastien Bassong og Assou-Ekotto voru báðir í byrjunarliði Kamerúna þegar þeir mættu Gambon í undankeppni Afríkukeppninnar sem fer fram í upphafi næsta árs. Kamerún vann gríðar mikilvægan sigur. Redknapp hefur eflaust ekki verið rótt þegar hann frétti af því að Bassong hafi þurft að fara meiddur af velli um miðjan fyrri hálfleik. Þetta var þó aðeins gert sem varúðarrástöfun. Ekotto spilaði allan leikinn.
Adel Taarabt skoraði glæsilegt mark í uppbótartíma fyrir Marokkó. Þetta mark tryggði Marokkóum dýrmætt stig í undankeppni Afríkukeppninnar.
Kyle Naughton og Danny Rose voru báðir í eldlínu U-21 liðs Englands sem vann Makedóníu. Dorian Dervite spilaði allan leikinn þegar U-21 lið Frakka vann Slóveníu 3-1.
9. september
Það voru allra augu á landsleik Englendinga gegn Króötum á miðvikudaginn. Króatarnir höfðu komið í veg fyrir að Englendingar kæmust á EM á síðasta ári þegar Króatarnir lögðu Englendinga í undankeppninni og áttu því Englendingar harma að hefna. Aaron Lennon byrjaði leikinn fyrir Englendinga en Defoe byrjaði á bekknum. Lennon fiskaði vítaspyrnu sem Lampard skoraði úr og áður en 16 mínútur höfðu liðið af leiknum var Lennon búinn að skapa annað mark með glæsilegri sendingu á Gerrard sem skoraði. Lennon var stöðug ógn á kantinum og lék Króatana hvað eftir annað grátt. Aaron Lennon var valinn maður leiksins í 5-1 sigri og það þrátt fyrir að bæði Lampard og Gerrard hafi skorað 2 mörk hvor. Defoe kom inná þegar rúmur hálftími var eftir af leiknum.
Giovani dos Santos spilaði 79 mínútur með Mexíkó þegar þeir mættu Wilson Palacios og félögum í Hondúras. Giovani fiskaði vítaspyrnu á 75 mínútu sem liðsfélagi hans skoraði úr og var það eina mark leiksins. Palacios spilaði allan leikinn.
Roman Pavlyuchenko var aftur á skotskónum fyrir Rússa þegar þeir mættu Veils. Pav byrjaði á bekknum en kom inná á 70. mínútu og skoraði þriðja og síðasta mark Rússa í uppbótartíma í 3-1 sigri.
Alan Hutton spilaði 90 mínútur með Skotum sem mættu Hollendingum í 10 riðli undankeppninnar. Það er einmitt sami riðill og Íslendingar eru í. Skotar töpuðu leiknum 1-0.
Ekotto spilaði 90 mínútur með Kamerúnum sem lögðu Gambon í undankeppni Afríkukeppninnar.






