Það var búist við hörku leik á White Hart Lane þegar Sunderland komu í heimsókn. Í liði Sunderland eru þó nokkrir fyrrum leikmenn Tottenham sem vitað var að vildu sýna sínar bestu hliðar í þessum leik. Sunderland hefur verið að standa sig vel það sem af er leiktíðar og voru í 8. sæti fyrir leikinn. Á hinn boginn mættu Sunderland með vængbrotið lið í leikinn þar sem nokkrir af mikilvægustu mönnum þeirra voru fjarverandi. Munar þar mestu um Kenwyne Jones, Lee Cattermole og fyrirliðan Lorik Cana. Augu allra voru hinsvegar á hinum eldheita Darren Bent sem var að mæta Tottenham í fyrsta skipti eftir að hafa gengið í raðir Sunderland síðasta sumar. Bent hafði fyrir leikinn skorað 8 mörk fyrir Sunderland og var markahæstur í liðinu. Tottenham hafði hinsvegar verið að hiksta örlítið í deildinni eftir að hafa átt sína bestu byrjun í mörg ár. Spurs hafði einungis tekist að sigra einn af síðustu 4 leikjum sínum í deildinni þegar kom að leiknum á laugardaginn. Skörð voru einnig hoggin í lið Tottenham. Aaron Lennon, Modric, Bassong og Giovani voru frá vegna meiðsla. Harry gerði 2 breytingar á liðinu sem mætti Arsenal um síðustu helgi. Bentley var látin víkja fyrir Defoe og í stað Bassong sem var meiddur kom Woodgate.
Það var jafnræði með liðunum fyrstu mínútur leiksins. Sunderland fékk ágætis færi á 6. mínútu sem fór forgörðum, en fyrsta alvöru færi Tottenham kom hinsvegar á 12 mínútu þegar Ekotto átti fyrirgjöf frá vinstri inn í teig þar sem Crouch hoppaði hæst allra sem oft áður, og skallaði boltann fyrir fætur Keane sem lék á rangstöðulínu Sunderland og skóflaði boltanum í netið. Staðan því eftir 12 mínútur 1-0 fyrir Spurs. Sunderland voru þó ekki af baki dottnir og voru betri aðilinn í fyrrihálfleik. Á 18. mínútu átti Richardson hættulegt skot eftir sendingu frá Malbranque og á 33. mínútu greip Gomes vel inn í sókn Sunderland og náði að bægja hættunni frá. Á 38. mínútu átti svo Reid frábært skot úr aukaspyrnu af 28 metra færi sem small í tréverkinu. Á 40. mínútu gerði Corluka fáránleg mistök þegar hann ætlaði að senda boltann til baka á Gomes í markinu en sendingin arfaslök og Richardson komst á milli, en sem fyrr var Gomes mættur til að bjarga málunum og lokaði meistaralega á Richardson. Hálfleikstölur því 1-0 fyrir Tottenham og máttu leikmenn Spurs þakka fyrir að hafa haldið hreinu í hálfleik, enda Sunderland mjög hættulegir. Leikmenn Sunderland hafa að sama skapi líklega verið vonsviknir með að hafa ekki náð að skora í það minnsta eitt mark í fyrri hálfleik.
Síðari hálfleikur fór svipað af stað og sá fyrri. Jafnræði var með liðunum fyrstu mínúturnar en eftir rúmar 10. mínútur fóru hlutirnir að gerast. Á 51. braut Gomes á Bent innan teigs og dómarinn dæmdi vítaspyrnu. Það var Darren Bent sjálfur sem tók vítaspyrnuna. Kolkrabbinn Gomes hafði greinilega verið á vítaspyrnuæfingum með Bent á síðustu leiktíð því hann las Bent eins og opna bók og varði glæsilega. Tveim mínútum síðar eða á 53. mínútu átti Malbranque frábært langskot sem Gomes í markinu varði enn og aftur meistaralega. Á 58. mínútu kom loks hættulegt færi hjá leikmönnum Tottenham. Huddlestone gefur stungusendingu á Defoe sem er kominn einn á móti markmanni en Gordon í markinu lokar vel og ver boltann. Boltinn berst af Gordon til Huddlestone sem lætur vaða af 29 metra færi á opið markið, þar sem Gordon liggur meiddur í grasinu. Bardsley nær hinsvegar að komast fyrir skotið og bægir hættunni í burtu. Gordon þurfti að fara af velli og í hans stað bættist enn annar fyrrum leikmaður Tottenham í lið Sunderland þegar Marton Fulop tók stöðu hans í markinu. Á 68. mínútu dró svo aftur til tíðinda upp við mark Sunderland. Defoe gefur boltann á Huddlestone sem á bylmingsskot af löngu færi sem fer í stöngina og inn. Algjört draumamark og Fulop í markinu varnarlaus. Staðan því orðin 2-0 og ekki hægt að segja að markamunurinn sýni raunsæja mynd af leiknum. Þetta mark virtist draga örlítið vígtennurnar úr Sunderland og Tottenham náði örlitlum tökum á leiknum. Á 76. mínútu komust leikmenn Tottenham nálægt því að skora þegar Kranjcar, sem hafði komið inná sem varamaður fyrir Keane komst í dauðafæri en skot hans í Turner og þaðan rétt framhjá. Á 81. mínútu ætlaði Kranjcar að endurtaka leik Huddlestone með því að taka langskot á markið en boltinn fór rétt yfir slánna. Á 83. mínútu átti svo Sunderland gott færi þegar Campbell átti flotta fyrirgjöf inn í teiginn þar sem Turner reis hæst allra og náði góðum skalla á markið. En Gomes var enn og aftur réttur maður á réttum stað og náði að fleygja sér niður í hornið og koma hönd á knöttinn. Lokatölur leiksins því 2-0 sigur Tottenham.
Liðið: Gomes, Corluka, Woodgate, King (Dawson, 60), Ekotto, Huddlestone, Jenas, Palacios, Keane (Kranjcar, 63), Crouch, Defoe
EKG






