Tap í nágrannaslag

0
668

Tottenham mætti erkifjendum sínum og nágrönnum í Arsenal um helgina þegar þeir heimsóttu þá á Emirates Stadium. Leikurinn á þessum sama velli í fyrra var æsispennandi og lauk með 4-4 jafntefli en sömu sögu var ekki að segja af leiknum að þessu sinni. Klaufaleg mistök leikmanna Tottenham urðu þeim dýrkeypt þar sem leikmenn Arsenal tóku öll völd undir lok fyrri hálfleiks og þá var ekki aftur snúið og lauk leiknum því með sigri heimamanna, 3-0 en mörkin skoruðu van Persie (2) og Fabregas.

 

Harry þurfti að gera breytingar á liðinu sökum meiðsla og leikbanna. Gomes stóð á milli stanganna sem fyrr og vörnin fyrir framan hann var skipuð þeim Corluka, King, Bassong og Ekotto. Á miðjunni léku þeir Bentley, Huddlestone, Palacios og Jenas og frammi þeir Crouch og Keane. Á bekknum sátu þeir Button, Bale, Dawson, Hutton, Woodgate, Kranjcar og Pavlyuchenko.

 

Fyrstu mínútur leiksins voru tíðindalitlar en á 13. mínútu komst Arshavin í gott færi en Gomes varði vel. Stuttu síðar fékk Keane sæmilegt færi fyrir framan mark Arsenal manna en tókst ekki að koma boltanum í netið. Þess í stað fengu Arsenal menn skyndisókn sem endaði með þrumuskoti frá Fabregas en Gomes varði meistaralega. Van Persie átti svo skot í hliðarnetið eftir rúmlega hálftíma leik og Arshavin komst stuttu síðar í gott færi eftir hraðaupphlaup en skot hans fór í Corluka og framhjá markinu. Keane fékk svo góða sendingu frá Jenas inn í teiginn en skot hans fór framhjá. Það var svo undir lok fyrri hálfleiks að leikmenn Tottenham misstu einbeitinguna í nokkrar mínútur og var refsað fyrir það. Leikmenn Arsenal fengu innkast við vítateig Tottenham, boltinn barst til Sagna sem gaf á Van Persie inni í teignum og hann kom boltanum í netið framhjá Gomes. Staðan orðin 1-0 fyrir heimamenn. Leikmenn Tottenham virtust eitthvað slegnir yfir þessu marki því þegar þeir tóku miðju eftir markið missti Palacios strax boltann til Fabregas sem hljóp upp völlinn og þrumaði boltanum í netið. Staðan orðin 2-0 fyrir heimamenn, eftir 2 mörk á sömu mínútunni og þannig stóðu leikar í hálfleik.

 

Harry breytti um leikskipulag í hálfleik enda þýddi lítið að spila varnarbolta eftir mistökin í fyrri hálfleik. Keane hafði haldið sig meira á miðjum vellinum í fyrri hálfleik og Crouch var einn frammi en í síðari hálfleik skipti Harry yfir í hið hefðbundna 4-4-2 kerfi og færði Keane sig því framar á völlinn. Arsenal menn fengu þó fyrsta færi síðari hálfleiks þegar Diaby komst í ágætis færi en Bassong komst í veg fyrir skot hans. Gomes gerði svo vel stuttu síðar þegar hann varði skot frá Eduardo. Þegar um 10 mínútur voru liðnar af síðari hálfleik gerði Harry fyrstu skiptingu sína. Huddlestone fór af velli og Bale kom inná í hans stað.  Stuttu síðar þurfti Almunia að hafa sig allan við þegar Bentley skaut að marki úr hornspyrnu, en Almunia varði vel. En þegar tæp klukkustund var liðin af leiknum bættu Arsenal menn við þriðja markinu. Ekotto braut á Eduardo vinstra megin á vellinum og aðstoðardómarinn flaggaði og gaf til kynna aukaspyrnu. Leikmenn hættu leik þar sem þeir héldu að dómarinn hefði flautað en Sagna varð fyrstur til að sjá að svo var ekki, hljóp upp kantinn og gaf fyrir markið þar sem Van Persie beið og kom boltanum í netið. Staðan orðin 3-0 og lítil von eftir hjá leikmönnum Tottenham. Pavlyuchenko kom inná fyrir Keane þegar 25 mínútur voru til leiksloka og Hutton kom inná í stað Corluka þegar 5 mínútur voru til leiksloka. En leikmenn Tottenham náðu ekki að minnka muninn og leiknum lauk því með sigri Arsenal manna.

 

Lið Spurs: Gomes, Corluka(Hutton), King, Bassong, Ekotto, Bentley, Huddlestone(Bale), Palacios, Jenas, Keane(Pavlyuchenko), Crouch. Ónotaðir varamenn: Button, Dawson, Woodgate, Kranjcar.