Jafntefli gegn Fulham á annan dag jóla

0
735

Tottenham heimsótti Fulham á Craven Cottage á annan dag jóla í 19. umferð deildarinnar, en liðin hafa mæst á þeim degi sl. 2 ár. Leikmenn beggja liða voru fullir sjálfstrausts eftir góða frammistöðu í umferðinni á undan, Tottenham sótti góðan útisigur á Blackburn á meðan Fulham lögðu núverandi Englandsmeistara, Manchester United, á heimavelli. En það var jafnræði meðal liðanna í þessum jólaleik þó að leikmenn Fulham hefðu átt hættulegri færi. ‘Hvorugu liðinu tókst þó að skora og því lauk leiknum með 0-0 jafntefli og liðin deildu því stigunum.

 

Harry Redknapp kaus að gera nokkrar breytingar á liðinu enda 2 leikir á þremur dögum yfir jólin og því nauðsynlegt að nýta breidd hópsins eins og mögulegt var. Í markinu stóð þó Gomes sem fyrr og vörnin fyrir framan hann var skipuð þeim Corluka, Dawson, Bassong og Ekotto. Á miðjunni léku þeir Lennon, Jenas, Palacios og Kranjcar og frammi þeir Keane og Crouch. Á bekknum sátu þeir Alnwick, Bale, King, Huddlestone, Modric, Defoe og Pavlyuchenko.

 

Leikmenn Fulham komu nokkuð ákveðnari til leiks og strax á fyrstu mínútunum reyndi nokkuð á Gomes. Duff og Gera fengu sitthvort færið en Gomes var vel vakandi og varði skot þeirra. Fyrrum spursarinn, Danny Murphy, fékk svo upplagt færi til að koma Fulham yfir þegar boltinn barst til hans eftir hornspyrnu. Hann þrumaði að marki en Gomes náði með glæilegri markvörslu að ýta boltanum yfir markið með fingurgómunum. Á 18. mínútu leiksins náði Crouch að skora framhjá Schwarzer í markinu en markið var dæmt af sökum þess að dómarinn var búinn að flauta aukaspyrnu fyrir brot á Niko Kranjcar. Kranjcar tók sjálfur aukaspyrnuna og skaut yfir markið. Þegar rúmlega háfl klukkustund var liðin af leiknum fengu Fulham menn aukaspyrnu fyrir utan teiginn og var það Dempsey sem tók spyrnuna. Hann þrumaði í áttina að markinu en skot hans hafnaði í þverslánni. Leikmenn Fulham voru mun hættulegri í sóknarleik sínum en leikmenn Tottenham vörðust vel. Sömu sögu má segja af varnarleik Fulham en hann var mjög agaður. Undir lok fyrri hálfleiks munaði litlu að Keane næði að gefa á Crouch sem var í góðri stöðu fyrir framan markið en varnarmenn Fulham komu í veg fyrir það. Liðin skildu því jöfn 0-0 þegar flautað var til hálfleiks.

 

Tottenham átti fyrsta færi síðari hálfleiks en það var þrumuskot frá Jenas sem fór rétt yfir markið. Á hinum enda vallarins fékk Zamora gott færi en Gomes varði vel. Crouch komst svo í ágætt færi en náði ekki að koma boltanum í net Fulham manna. Leikmenn Fulham tóku svo völdin á vellinum og Gomes átti í fullu fangi með að verjast sóknum þeirra. Dempsey og Zamora fengu báðir dauðafæri en Gomes varði meistaralega og hélt leikmönnum Tottenham inni í leiknum. Á 70. mínútu gerði Harry svo tvöfalda skiptingu til að freista þess að ná öllum stigunum. Kranjcar og Keane fóru af velli og inná í þeirra stað komu Defoe og Modric. Litlu munaði að Defoe næði að skora fljótlega eftir að hann var kominn inná og Crouch og Jenas fengu sömuleiðis ágæt færi en inn vildi boltinn ekki. Undir lok leiksins munaði litlu að Fulham menn næðu að hirða öll stigin þegar Duff gaf boltann fyrir markið en Dempsey var aðeins of seinn og náði ekki til boltans. Í uppbótartíma fékk Bassong spark í höfuðið og þurfti nokkra aðhlynningu en virtist svo tilbúinn í slaginn að halda áfram. Harry kaus þó að taka enga áhættu og skipti King inná í hans stað á síðustu mínútunum. Hvorugu liðinu tókst að skora og því lauk leiknum með markalausu jafntefli og fengu því liðin sitthvort stigið.

 

Lið Spurs: Gomes, Corluka, Dawson, Bassong (King), Lennon, Jenas, Palacios, Kranjcar (Modric), Keane (Defoe) Crouch. Ónotaðir varamenn: Alnwick, Bale, Huddlestone, Pavlyuchenko.

 

SAJ