Crouch með 2 mörk í fræknum útisigri

0
768

Eftir frábæra frammistöðu í síðasta leik gegn City á White Hart lane mætti Tottenham nú á Ewood Park þar sem Blackburn tóku á móti okkur. Þó Blackburn hafi ekki riðið feitum hesti það sem af er þessu tímabili, er þó Ewood park nánast óvinnandi vígi. Í undanförnum tveim leikjum á Ewood park höfðu Blackburn náð jafntefli. Fyrst gegn Chelsea og svo gegn Liverpool á dögunum. Það var því ljóst að Blackburn menn myndu ekki gefa Spurs neitt eftir í þessum leik.
Harry Redknapp hélt sig við sömu liðsuppstillingu og hann tefldi fram gegn Manchester City í síðasta leik. Eina breytingin sem átti sér stað var sú að Rose tók sæti Modric á varamannabekknum. Það verður þó seint sagt að allar aðstæður til knattspyrnuiðkunar hafi verið eins og best verður á kosið. Þegar leikurinn hófst var talsverð snjókoma og völlurinn því blautur og kaldur.

 

Það voru leikmenn Blackburn sem byrjuðu leikinn betur. Á 8. mínútu komust heimamenn í fína sókn, en Dawson var réttur maður á réttum stað og náði í samvinnu við Gomes að bægja hættunni frá. Á 14. mínútu dró svo aftur til tíðinda. Dawson hafði verið dæmdur brotlegur af því er virtist fyrir litlar sakir. McCarthy tók aukaspyrnuna og skaut boltanum í Lennon sem stillti sér einn síns liðs upp í varnarvegg boltinn fór hátt í loft upp og endaði með því að detta ofan á þverslánna og þaðan aftur fyrir. Það var fátt um fína drætti hjá Tottenham í sóknarleiknum í fyrrihálfleik. Fyrsta almennilega tækifæri þeirra kom á 23. mínútu þegar Defoe skaut boltanum vel framhjá eftir sendingu frá Kranjcar. Menn máttu bíða álíka lengi eftir næsta færi sem kom á 47. mínútu í uppbótartíma, sem reyndar átti aðeins að vera ein mínúta. Huddlestone átti misheppnað skot að marki og boltinn virtist á leiðinn út fyrir en Kranjcar náði að halda boltanum inná vellinum og gefa glæsilega fyrirgjöf inn í teiginn frá hægri. Þar reis Peter nokkur Crouch manna hæst eins og svo oft áður og náði að stanga knöttinn í innan verða slánna og í markið og staðan því orðin 0-1. Blackburn mann rétt náðu að taka miðju þegar dómari leiksins flautaði til marks um lok fyrri hálfleiks.

 

Síðari hálfleikur fór fjörlega af stað. Eftir 8 mínútna leik í síðari hálfleik bjargaði tréverkið Spurs í annað sinn í leiknum. McCarthy var aftur á ferðinni að þessu sinni þegar boltinn féll fyrir hann eftir harða hríð Blackburn manna. Skot hans af stuttu færi hafnaði í innan verðri stönginni og boltinn rúllaði eftir marklínunni og kapphlaup Di Santo og Bassong um boltann endaði með því að Bassong náði með naumindum að hreinsa knöttinn frá áður en Di Santo hefði náð að pota knettinum inn fyrir línuna. Eftir þetta voru Blackburn menn mun meira með boltann. Á 56 mínútu náði Di Santo góðu skoti af löngu færi sem Gomes náði að verja örugglega. Fátt markvert gerðist næstu rúmu 20 mínúturnar eða þar til á 79. mínútu þegar Lennon átti góða sendingu inná Crouch sem skoraði mark sem var dæmt af vegna rangstöðu. Þremur mínútum síðar var Crouch aftur á ferðinni eftir sendingu frá Jenas. Crouch slapp einn inn fyrir og í þetta sinn var hann réttstæður og afgreiddi boltann með stæl í netið. Staðan því orðin 0-2 fyrir Spurs og aðeins 8 mínútur eftir af leiknum. Eftir þetta sóttu Blackburn menn í sig veðrið og áttu tvö úrvalsfæri. Það fyrra átti McCarthy á 84. mínútu þegar hann átti frábært langskot sem Gomes þurfti að teygja fingurgómana í til að bjarga marki, klárlega besta markvarsla leiksins. Á 87. mínútu átti svo Nielsen skalla að marki af 6 metra færi eftir hornspyrnu frá Pedersen en náði ekki að stýra boltanum nógu vel og boltinn fór því framhjá. Loka tölur leiksins 0-2.

 

Liðið: Gomes, Corluka, Dawson, Bassong, Ekotto, Lennon (Hutton 90), Palacios (Jenas 58), Huddlestone, Kranjcar, Defoe (Keane 67), Crouch

 

 

EKG