Óvænt tap á heimavelli gegn Wolves

0
651

Tottenham tók á móti Wolves í leik helgarinnar á White Hart Lane. Liðin eru á gjörólíkum stað í deildinni, Tottenham gerir atlögu að meistaradeildarsæti á meðan leikmenn Wolves berjast um að halda sér í deildinni enda í fallsæti sem stendur. Það voru því flestir sem bjuggust við sigri heimamanna fyrir leikinn því oft hefur White Hart Lane verið erfiður andstæðingum Tottenham. En sú varð þó ekki raunin því að gestirnir náðu óvænt að hirða öll stigin úr þessari viðureign og voru lokatölur 1-0, úlfunum í hag. Eina mark leiksins kom strax á 3. mínútu og var það Doyle sem skoraði mark leiksins með skalla eftir aukaspyrnu.

 

Harry gerði eina breytingu á liðinu frá jafnteflisleiknum á móti Everton, Keane kom inn í liðið á kostnað Crouch sem tók sæti á bekknum. Liðið var því þannig skipað að Gomes stóð á milli stanganna í markinu og vörnin fyrir framan hann var skipuð þeim Corluka, Dawson, Bassong og Ekotto. Á miðjunni léku þeir Lennon, Huddlestone, Palacios og Kranjcar og framlínupar dagsins var skipað þeim Defoe og Keane. Á bekkinn voru mætt kunnugleg andlit en Giovani og Modric höfðu náð sér af meiðslum sínum og tóku sæti á bekknum. Þar sátu því Alnwick, Bale, Hutton, Rose, Modric, Giovani og Crouch.

 

Það var ekki mikið liðið af leiknum þegar fyrsta mark leiksins leit dagsins ljós. Strax á þriðju mínútu leiksins flaggaði aðstoðardómari leiksins aukaspyrnu ekki langt frá hornfánanum á vinstri kanti Spurs. Huddlestone var talinn brotlegur en atvikið var þó umdeilt því í augum flestra var þetta bara öxl við öxl barátta um boltann. Milijas tók spyrnuna og gaf boltann inn í teiginn þar sem Doyle skallaði boltann í netið framhjá Gomes. Staðan orðin 0-1 gestunum í vil. Markið kom leikmönnum Tottenham í opna skjöldu og tók þá soldinn tíma að ná áttum og koma sér almennilega inn í leikinn. Leikmenn Wolves voru hins vegar hæstánægðir með markið og þéttu strax varnarleik sinn. Það gerðist því fátt markvert í fyrstu í fyrri hálfleik. Leikmenn Tottenham náðu svo tökum á leiknum og voru mun meira með boltann en varnarleikur Wolves manna var mjög agaður og lítið um tækifæri heimamanna. Defoe, Keane, Huddlestone og Lennon fengu allir hálffæri sem þó reyndu aldrei neitt að ráði á Hahnemann í marki úlfanna. Staðan í hálfleik var því 0-1 gestunum í vil.

 

Engar breytingar voru gerðar á liðunum í hálfleik og eins og í fyrri hálfleik þá byrjuðu Wolves menn betur. Ebanks-Blake komst í ágætisfæri en Gomes varði vel skot hans.  Þegar tæp klukkustund var liðin af leiknum gerði Harry breytingu á liðinu því þrátt fyrir að liðið væri mun meira með boltann var lítið um hættuleg marktækifæri. Harry kaus því að taka Keane og Palacios af velli og setja Crouch og Modric inná í hans stað. Gífurleg fagnaðarlæti brutust út á White Hart Lane við þessa skiptingu þar sem Modric hefur verið sárt saknað en hann hefur verið frá vegna meiðsla í u.þ.b. 3 mánuði. En lítið gekk hjá leikmönnum Tottenham því leikmenn Wolves héldu einbeitingunni og vörðust vel. Kranjcar fékk gott færi þegar um stundarfjórðungur var til leiksloka en inn vildi boltinn ekki. Harry gerði svo sína síðustu skiptingu þegar um 11 mínútur voru eftir af leiknum, Kranjcar fór af velli og inná í hans stað kom Giovani. Huddlestone fékk svo tvö góð færi undir lokin en Hahnemann varði vel. Ebanks-Blake fékk hættulegt færi á hinum enda vallarins en tókst ekki að skora. Á lokamínútunum reyndu leikmenn Tottenham að jafna metin í stórsókn en gestirnir pökkuðu í vörnina og héldu fengnum hlut. Lokatölur því 0-1, Wolves í vil.

 

LIð Spurs: Gomes, Corluka, Dawson, Bassong, Ekotto, Lennon, Huddlestone, Palacios (Modric), Kranjcar (Giovani), Defoe, Keane (Crouch). Ónotaðir varamenn: Alnwick, Bale, Hutton, Rose.

 

SAJ