Tottenham heimsótti Everton í leik helgarinnar sl. sunnudag en fyrir tímabilið var talið að þessi lið, ásamt Aston Villa og Manchester City myndu veita topp 4 liðunum harða baráttu um meistaradeildarsætin. Gengi Everton manna hefur þó verið undir væntingum og sátu þeir í 16. sætinu fyrir leikinn en leikmenn Tottenham hafa byrjað leiktíðina vel og sátu í 3.sæti fyrir umferðina. Lengi vel leit út fyrir sigur Tottenham manna eftir að liði komst í 2-0 en leikmenn Everton náðu að snúa við blaðinu og jafna leikinn á lokamínútunum. Leiknum lauk því með jafntefli 2-2 en mörk Tottenham skoruðu þeir Defoe og Dawson.
Meiðsli settu strik sinn í liðsval Harry líkt og verið hefur allt þetta tímabil. Harry náði þó að stilla upp nokkuð sterku liði. Gomes stóð á milli stanganna og vörnin fyrir framan hann var skipuð þeim Corluka, Dawson, Bassong og Ekotto. Á miðjunni léku þeir Lennon, Huddlestone, Palacios og Kranjcar og frammi þeir Defoe og Crouch. Bekkurinn var skipaður þeim Alnwick, Bale, Hutton, Bentley, Jenas, Keane, Pavlyuchenko.
Það voru heimamenn sem byrjuðu leikinn betur og litlu munaði að boltinn færi í netið eftir skot frá Jo með viðkomu í Corluka en Gomes varði vel. Lennon og Defoe virtust hættulegir fram á við fyrir Tottenham en náðu þó ekki að skapa sér almennileg færi á fyrstu mínútunum. Rodwell fékk tækifæri til að koma Everton yfir á hinum enda vallarins en Gomes sá við honum. Eftir 7 mínútna leik fékk Crouch dauðafæri í vítateig Everton manna en hann hitti boltann illa og skot hans fór hátt yfir markið. Stuttu seinna fékk Defoe einnig gott færi en Howard varði vel. Bilyaletinov og Jo fengu ágæt færi en tókst ekki að koma boltanum framhjá Gomes í markinu. Á 32. mínútu fengu Everton menn aukaspyrnu á hættulegum stað sem Baines tók en Gomes var vel vakandi og varði boltann. Bæði lið sóttu stíft á lokamínútum fyrri hálfleiks og meiri harka fór að færast í leikinn. Mikið var um smávægilega pústra milli manna og fór gula spjaldið á loft nokkrum sinnum. En hvorugu liðinu tókst að skora í fyrri hálfleik og staðan því 0-0 í hálfleik.
Harry gerði strax skiptingu í hálfleik. Ekotto fór af velli og inná í hans stað kom Bale. Defoe fékk ágætt færi á upphafs mínútu síðari hálfleiks en náði ekki að koma boltanum framhjá Howard í markinu. En það sama var ekki að segja um færi hans á 47. mínútu, Lennon gaf góðan bolta fyrir markið og Defoe átti ekki í vandræðum með að koma boltanum framhjá Howard í markinu. Staðan orðin 0-1 fyrir Tottenham og Defoe með sitt 12. mark á tímabilinu. Stuttu síðar munaði litlu að Crouch næði að bæta við marki en Howard náði að blaka boltanum framhjá með fingurgómunum. Leikmenn Everton reyndu að komast meira inn í leikinn og svara fyrir sig en það voru samt leikmenn Tottenham sem bættu við marki. Á 59. mínútu fengu leikmenn Tottenham hornspyrnu sem Kranjcar tók. Hann spyrnti boltanum inn í vítateiginn þar sem Dawson skallaði boltann af öryggi framhjá Howard í markinu. Annað mark Dawson í jafnmörgum leikjum. Staðan orðin 0-2 gestunum í vil. David Moyes þurfti klárlega að gera breytingu á leik liðs síns og ákvað hann að setja Yakubu og Saha inná og breyta yfir í 4-4-2. Leikur Everton manna breyttist töluvert við það og urðu þeir öllu hættulegri fyrir framan markið. Crouch átti þó að gera betur þegar 13 mínútur voru til leiksloka en skot hans fór rétt framhjá stönginni. Þegar 12 mínútur voru til leiksloka náði Saha að minnka muninn fyrir Everton. Coleman hljóp upp að endamörkum og gaf boltann fyrir markið þar sem Saha var einn og óvaldaður á nærstönginni og kom boltanum framhjá Gomes í markinu. Staðan orðin 1-2 og leikurinn galopinn. Saha fékk svo aftur færi stuttu síðar en skot hans fór framhjá. Stuttu síðar kom þó jöfnunarmarkið hjá Everton. Baines kom boltanum fyrir markið þar sem Cahill skallaði boltann í netið. Staðan orðin 2-2 og Everton menn mun ákveðnari á lokamínútunum. Í uppbótartíma var svo brotið á Palacios inn í teig Everton manna. Hibbert hljóp inn í hann og hindraði hann þar með að ná til boltans. Dómarinn var ekki í vafa og dæmdi vítaspyrnu. Eftir að hlúð var að Palacios sem meiddist við áreksturinn var Hutton skipt inná í stað hans og Defoe steig á vítapunktinn. Defoe kaus að skjóta beint á mitt markið og náði Howard að verja skot hans með fótunum. Leiknum lauk því með 2-2 jafntefli og skiptu liðin því stigunum bróðurlega á milli sín.
Lið Spurs: Gomes, Corluka, Dawson, Bassong, Ekotto (Bale), Lennon, Huddlestone, Palacios (Hutton), Kranjcar (Jenas), Defoe, Crouch. Ónotaðir varamenn: Alnwick, Bentley, Keane, Pavlyuchenko.
SAJ






