Sigur í grannaslagnum gegn West Ham

0
699

Það var að venju uppselt á White Hart Lane þegar nágrannar okkar í West Ham komu í heimsókn. Leikurinn fór fram aðeins tveimur sólarhringum eftir síðasta leik liðsins gegn Fulham. Harry Redknapp gerði 4 breytingar á liðinu sem mætti Fulham. Modric var í fyrsta skipti í byrjunarliðinu frá því hann meiddist fyrir 4 mánuðum, á kostnað Kranjcar. King kom einnig inn í byrjunarliðið eftir nokkra fjarveru vegna meiðsla í stað Bassong. Huddlestone kom inn fyrir Jenas eftir að hafa byrjað á bekknum í fyrsta skipti á tímabilinu í síðasta leik, en Huddlestone hafði fram að því spilað alla deildarleikina. Að lokum tók markahæsti leikmaður deildarinnar Defoe stöðu Keane í sókninni. Á bekknum sátu þeir Alnwick, Bale, Hutton, Jenas, Kranjcar og Keane.
   Zola stjóri West Ham hefur líklega öfundað Harry af þeim hóp sem hann hafði úr að velja þar sem Zola þurfti að stilla upp mönnum í byrjunarliðið sem voru enn mjög tæpir vegna meiðsla. Þetta orsakaði það að Zola þurfti að gera 2 skiptingar á fyrstu 20 mínútum leiksins.

Leikurinn fór rólega af stað en á 11. mínútu kom fyrsta alvöru marktækifærið. Lennon þaut þá upp hægri kantinn og átti fyrirgjöf inn í teyginn sem Tomkins varnarmaður West Ham náði að pota tánni í. Boltinn hrökk þá fyrir fætur Modric sem skoraði sitt fyrsta mark á tímabilinu. Staðan því strax orðin 1-0 fyrir Tottenham. Þó tölfræðin næstu mínúturnar sýndu að liðin væru nokkurn veginn jafn mikið með boltann gerðist fátt markvert meðan West Ham var með knöttinn. Eina færi West Ham manna kom á 26. mínútu þegar Collinson átti skot að marki sem Gomes átti í litlum vandræðum með. Tottenham átti hinsvegar nokkur mjög góð færi. Það besta átti samt eflaust Defoe þegar hann tók aukaspyrnu af 24 metra færi sem fór hársbreidd framhjá markinu. Tottenham fór því með verðskuldaða 1-0 forustu inn í hálfleikinn.

Síðari hálfleikur byrjaði líkt og sá fyrri. Leikurinn fór rólega af stað en eftir 12 mínútna leik fóru færin að koma hjá Spurs. Á 52. mínútu var Palacios nálægt því að skora eftir undirbúning frá Lennon en boltinn straukst við kollinn á Upson sem varð til þess að boltinn fór framhjá markinu. 3 mínútum síðar átti Corluka sendingu inn í teiginn þar sem Huddlestone átti þrumuskot í stöngina, Modric náði frákastinu en náði ekki að halda boltanum niðri og skot hans vel yfir markið. Tottenham menn héldu áfram að sækja og sækja á meðan West Ham menn voru í stökustu vandræðum í sókninni. Stuðningsmenn Tottenham, sem hafa oftar en einu sinni séð sína menn tapa stigum á loka mínútunum í leikjum sem liðið hefði átt að klára, voru farnir að ókyrrast þegar komið var fram á 81. mínútu. West Ham hafði sótt að marki Spurs þegar Modric náði boltanum og kom af stað skyndisókn þar sem Defoe var kominn í fremstu víglínu og skaut að marki frá vítateigsboxinu en Green náði að verja. Defoe var hinsvegar réttur maður á réttum stað og náði frákastinu og hamraði boltann í netið gegn sínum gömlu félögum. Staðan því orðin 2-0 og stuðningsmenn Tottenham gátu andað ögn léttar. West Ham mönnum til vorkunnar ber að nefna hitt markskot þeirra í leiknum sem kom á 86. mínútu þegar Diamanti átti skot af löngu færi sem Gomes náði að verja. Lokatölur leiksins því 2-0 sigur sem hefði getað verið mun stærri með örlítilli heppni.

 

Liðið: Gomes, Corluka, Dawson, King, Ekotto (Bale 87), Lennon (Jenas 89), Huddlestone, Palacios, Modric (Kranjcar 83), Defoe, Crouch

 

 

EKG