Tottenham fékk lið Peterborough í heimsókn um helgina í 3. umferð FA bikarsins. Lið Peterborough spilar í Coca Cola Championship deildinni en það er næst efsta deildin á Englandi og verma þeir botnsætið þar um þessar mundir. Tottenham var því mun sigurstranglegra fyrir leikinn en óvænt úrslit geta alltaf litið dagsins ljós í bikarkeppnunum. En úrslitin komu engum á óvart enda sigraði Tottenham örugglega, 4-0 með mörkum frá Kranjcar(2), Defoe og Keane. Markvörður Peterborough átti stórleik í markinu og mega liðsfélagar hans þakka honum að sigur Tottenham varð ekki stærri. Tottenham er því komið áfram í 4.umferð bikarsins.
Harry Redknapp gerði 5 breytingar á liðinu frá sigurleiknum gegn West Ham en sýndi bikarkeppninni þó þá virðingu að stilla upp sterku liði gegn Peterborough. Liðið var þannig skipað að Gomes stóð á milli stanganna og vörnin fyrir framan hann var skipuð þeim Hutton, Dawson, Bassong og Bale. Á miðjunni léku þeir Modric, Huddlestone, Palacios og Kranjcar og frammi þeir Defoe og Keane. Á bekknum sátu þeir Alnwick, Corluka, Naughton, Giovani, Rose, Crouch og Pavlyuchenko.
Strax frá fyrstu mínútu mátti sjá hvort liðið spilar í Úrvalsdeildinni því leikmenn Spurs voru mun sterkari og sóttu stíft allt frá fyrstu mínútu. Á 7.mínútu munaði aðeins hársbreidd að Defoe næði til boltans eftir fyrirgjöf frá Bale og tveimur mínútum síðar hafnaði þrumuskot Defoe í þverslánni. Lewis varði svo tvö góð skot, annað frá Keane og hitt frá Huddlestone eftir aukaspyrnu. Þegar rúmlega tuttugu mínútur voru liðnar af leiknum áttu Kranjcar og Keane ágæt færi en skot Kranjcar fór yfir markið og skot Keane vel framhjá. En á 27. mínútu átti Lewis meistaralega markvörslu í marki Peterborough þegar Kranjcar þrumaði að marki. Lewis náði að blaka boltanum með fingurgómunum í þverslánna og þaðan fór boltinn aftur út á völlinn. En á 35. mínútu var lítið sem Lewis gat gert annað en að hirða boltann úr eigin neti. Kranjcar fékk boltann vinstra meginn í vítateignum og skaut þrumuskoti að marki sem hafnaði efst í hægra markhorninu, óverjandi fyrir Lewis. Glæsilegt mark sem var valið mark umferðarinnar á ITV sjónvarpsstöðinni. Staðan orðin 1-0 fyrir heimamenn. Leikmenn Spurs héldu svo áfram sóknarleik sínum og áttu Defoe, Palacios, Bale og Huddlestone allir ágæt færi en Lewis var vel vakandi í markinu og máttu liðsfélagar hans þakka honum fyrir að ekki voru fleiri en eitt mark sem skildu liðin að í hálfleik. Leikmenn Peterborough fengu svo eitt sæmilegt færi á lokamínútu fyrri hálfleiks en Gomes var vel vakandi þrátt fyrir að hafa lítið sem ekkert að gera í fyrri hálfleik. Staðan í hálfleik var því eins og áður sagði 1-0 heimamönnum í vil.
Leikmenn Spurs héldu áfram stórsókn sinni í síðari hálfleik líkt og í þeim fyrri. Lewis varði skot frá Keane, Keane átti svo annað skot að marki sem fór vel yfir markið, Huddlestone þrumaði langskoti yfir markið og Bassong var nálægt því að ná að skalla boltann að marki eftir hornspyrnu frá Kranjcar. En á 56. mínútu náði Kranjcar að skora sitt annað mark í leiknum og auka forystu Tottenham í 2 mörk. Bale tók á sprettinn upp vinstri kantinn, Keane gaf góða sendingu á Bale sem hljóp með boltann upp að endamörkum og gaf svo inn í teiginn á Kranjcar sem skoraði af öryggi framhjá Lewis í markinu. Staðan orðin 2-0 fyrir Tottenham. Eftir annað markið fóru leikmenn Peterborough að færa sig aðeins framar á völlinn og á 65. mínútu þurfti Gomes að hafa sig allan við til að verja skot frá Mackail-Smith. En þrátt fyrir góða tilraun að marki þá voru það leikmenn Tottenham sem skoruðu næsta mark á 70.mínútu. Dawson gaf góða sendingu á Kranjcar sem sendi boltann svo á Bale sem hafði tekið á sprett upp vinstri kantinn. Bale gaf boltann svo á Defoe inni í teig Peterborough manna sem skoraði af öryggi framhjá Lewis í markinu og var þetta hans 16.mark á tímabilinu í öllum keppnum. Þegar rúmlega 15 mínútur voru til leiksloka var Gomes aftur vel vakandi í markinu þegar hann var örlítið fyrr að ná til boltans eftir fyrirgjöf frá Batt, en Mackail-Smith var ekki langt frá, tilbúinn að pota boltanum í netið. Á 73.mínútu gerði Harry sína fyrstu skiptingu, Kranjcar fór af velli og Rose kom inná í hans stað, en þetta var fyrsti leikur Rose á White Hart Lane eftir að hann kom til liðsins frá Leeds sumarið 2007. Tveimur mínútum síðar neyddist Harry til að gera aðra skiptingu þegar Defoe varð fyrir smávægilegum meiðslum og Pavlyuchenko kom inná í hans stað. Stuttu síðar kom svo þriðja og síðasta skipting Tottenham í leiknum, Bale fór af velli og Naughton kom inná í hans stað. Leikurinn róaðist aðeins undir lok venjulegs leiktíma en Rose átti þó góða innkomu og gaf góða sendingu inn í teiginn á lokamínútum venjulegs leiktíma en Pavlyuchenko náði ekki til boltans. Fjórum mínútum var bætt við venjulegan leiktíma og þegar tæp mínúta var liðin af honum náði Keane að koma boltanum í netið eftir sendingu frá Modric en aðstoðardómarinn var búinn að flagga rangstöðu og markið því ekki dæmt gilt. En á 93.mínútu var Rose felldur inni í vítateig Peterborough manna og dómarinn var ekki í vafa og dæmdi vítaspyrnu. Keane steig á vítapunktinn og skoraði úr spyrnunni og kom Tottenham í 4-0. Ekki urðu mörkin fleiri og lauk því leiknum með 4-0 sigri Tottenham.
Lið Spurs: Gomes, Hutton, Dawson, Bassong, Bale(Naughton), Modric, Huddlestone, Palacios, Kranjcar(Rose), Defoe(Pavlyuchenko), Keane. Ónotaðir varamenn: Alnwick, Corluka, Giovani, Crouch.
SAJ






