Aldershot-Spurs 0-4

0
730

Tottenham lék í dag sunnudag við Aldershot æfingarleik. Það má segja að liðið hafi verið skipað þeim leikmönnum sem ekki léku í gær ásamt nokkrum varaliðsmönnum eins og Emil Hallfreðs. Spurs vann 4-0 og gerðu El Hamaoui, Carrick, Davenport og Keane mörkinn.   Fyrsta markið kom á 19. mínútu og var þar El Hamdaoui á ferð. Davenport gerði svo annað markið á 37. mínútu. Carrick bætti svo þriðja markinu við á 66. mínútu og Keane rak smiðshöggið á verkið með fimmta marki sínu á undirbúningstímanum á 68. mínútu.