Edgar Davids er leikmaður Tottenham

0
692

Tottenham Hotspur tilkynnti um miðnætti að Edgar Davids væri búinn að srifa undir samning við þá. Það er því komið í höfn að þessi frábæri knattspyrnumaður leikur með Tottenham á komandi tímabili.
Það er reiknað með að hann spili gegn Porto á laugardaginn.

Davids er 32. ára miðjumaður sem hefur leikið með mörgum af bestu liðum í Evrópu. Má þar nefna Ajax, Juventus, AC Milan, Inter Milan og svo Barcelona. Hann hefur unnið meistaratitla og Evróputitla með þessum liðum ásamt því að vera landsliðsmaður í landsliði Hollendinga síðastliðin 10 ár. Við bjóðum Edgar Davids velkominn í okkar raðir.