Jafnt í bikarslag á White Hart Lane

0
650

Tottenham tók á móti Leeds á White Hart Lane í 4.umferð ensku bikarkeppninnar. Tottenham hafði lagt lið Peterborough af velli í síðustu umferð á meðan Leeds hélt í erfiða ferð á Old Trafford en náðu óvæntum sigri þar. Bæði lið voru staðráðin í að fara með sigur af hólmi og lengi vel stefndi í Tottenham sigur en á síðustu mínútunni fengu leikmenn Leeds vítaspyrnu og jöfnuðu metin 2-2. Liðin þurfa því að mætast aftur og fer sá leikur fram á Elland Road, miðvikudaginn 3.febrúar.

Harry stilti upp nokkuð sterku liði en kaus að gefa sumum leikmönnum sjéns, m.a. hinum unga og efnilega Danny Rose. Liðið var því þannig skipað að Gomes stóð á milli stanganna og vörnin fyrir framan hann var skipuð þeim Hutton, Dawson, Bassong og Bale. Á miðjunni spiluðu þeir Kranjcar, Modric, Jenas og Rose og frammi byrjuðu þeir Crouch og Defoe. Á bekknum sátu þeir Alnwick, Dervite, Naughton, O´Hara, Palacios, Keane og Pavlyuchenko.

 

Leikmenn Tottenham mættu mun ákveðnari til leiks og strax á 6.mínútu var Defoe nálægt því að skora. Boltinn barst til hans hægra megin í teignum og hann skaut háum bolta í áttina að markinu og litlu munaði að hann næði að vippa yfir markvörðinn. En markvörður Leeds náði að blaka boltanum yfir markið og úr hornspyrnunni náði Kranjcar góðu skoti að marki sem markvörðurinn varði einnig. Á 8.mínútu fengu leikmenn Leeds dæmda á sig vítaspyrnu eftir brot á Danny Rose. Defoe steig á vítapunktinn og þrumaði að marki en markvörður Leeds varði skot hans. Bale fékk svo tvö tækifæri til að koma Tottenham yfir með skotum úr aukaspyrnu en markvörður Leeds var enn og aftur réttur maður á réttum stað. Kranjcar og Defoe voru einnig nálægt því að skora en inn vildi boltinn ekki. Þegar um hálftími var liðinn af leiknum fóru leikmenn Leeds að sækja aðeins meira á mark Tottenham og Gomes varði vel frá Snodgrass og Beckford. En það var svo á 42. mínútu sem Tottenham tókst að koma boltanum í netið hjá Leeds. Bale tók á sprett upp vinstri kantinn og gaf boltann inn í teiginn. Þar náði Kranjcar til boltans og þrumaði að marki en markvörður Leed varði enn og aftur. En boltinn barst til Crouch sem kom boltanum í netið og staðan því orðin 1-0 heimamönnum í vil. Í uppbótartíma munaði litlu að Jenas næði að skora annað mark Tottenham en skot hans fór yfir markið. Staðan í hálfleik var því 1-0, Tottenham í vil.

 

Leikmenn Leeds mættu ákveðnir til leiks í síðari háfleik enda bara eitt mark sem skildi liðin að. Strax á fyrstu mínútunni munaði litlu að Beckford, sá sem skaut United út úr bikarnum, næði að skora eftir misheppnaða sendingu Jenas á Gomes. Beckford náði boltanum en skot hans fór framhjá markinu. En þegar rúmlega 50 mínútur voru liðnar af leiknum náði Beckford að jafna leikinn fyrir Leeds. Snodgrass tók hornspyrnu og gaf fyrir markið. Þar barst boltinn að lokum til Beckford sem skaut á markið af stuttu færi og skoraði af öryggi framhjá Gomes. Staðan orðin jöfn 1-1 og leikurinn galopinn. Á 56. mínútu gerði Harry fyrstu skiptinguna sína, Rose fór af velli og Palacios kom inná í hans stað. Modric færði sig þá út á vinstri kantinn og Palacios tók sæti á miðjunni við hlið Jenas. Á 70. mínútu nýtti Harry svo síðustu skiptingar sínar þegar hann skipti bæði Keane og Pavlyuchenko inná fyrir Crouch og Kranjcar. Skiptingi borgaði sig aldeilis því Pavlyuchenko náði að koma boltanum í netið þegar stundarfjórðungur var eftir af leiknum. Það leit allt út fyrir að Tottenham væri á leið í 5.umferð bikarsins því þrátt fyrir pressu frá Leeds þá náðu þeir ekki að koma boltanum framhjá Gomes í markinu. Það var því mikið áfall fyrir leikmenn Tottenham þegar dómarinn dæmdi vítaspyrnu á Tottenham eftir að Dawson braut á leikmanni Leeds innan vítateigs. Beckford steig á vítapunktinn og skoraði af öryggi og tryggði þar með liði sínu annan möguleika á að komast áfram í bikarnum því liðin mætast að nýju þann 3. febrúar nk. á Elland Road. Lokatölur 2-2.

 

Lið Spurs: Gomes, Hutton, Dawson, Bassong, Bale, Kranjcar(Keane), Jenas, Modric, Rose(Palacios), Crouch(Pavlyuchenko), Defoe. Ónotaðir varamenn: Alnwick, Dervite, Naughton, O´Hara.

DEILA
Fyrri fréttTap gegn Liverpool
Næsta fréttDregið í FA bikarnum