Tottenham heimsótti Liverpool á Anfield þann 20. janúar en leikurinn átti að fara fram 10 dögum áður, en var frestað vegna slæmrar veðráttu. Bæði liðin voru ákveðin í að ná öllum þremur stigunum enda að berjast á svipuðum stað í deildinni og mikilvægt að hafa stig af helstu keppinautunum. Lykilmenn voru fjarverandi í báðum liðum vegna meiðsla. Liverpool hafði svo sigur að lokum 2-0 þar sem Dirk Kuyt skoraði bæði mörk Liverpool manna.
Harry stilti upp sínu sterkasta liði gegn Liverpool miðað við þann mannskap sem hann hafði úr að velja. Í markinu stóð Gomes og vörnin fyrir framan hann var skipuð þeim Corluka, Dawson, King og Bale. Á miðjunni léku þeir Modric, Jenas, Palacios og Kranjcar og frammi byrjuðu þeir Defoe og Crouch. Á bekknum sátu þeir Alnwick, Bassong, Hutton, Giovani, Rose, Keane og Pavlyuchenko.
Leikmenn Liverpool komu mun ákveðnari til leiks og voru staðráðnir í að berjast allt frá upphafi til enda um sigurinn. Leikmenn Tottenham fengu þó gott færi eftir rúmlega 5 mínútna leik þegar Bale tók á sprettinn upp vinstri kantinn og gaf fyrir markið. Þar munaði minnstu að Defoe næði til boltans en Reina hafði betur. Reina kom boltanum fljótt í leik, sparkaði honum langt fram á völlinn á Kuyt sem kom honum áfram á Aquilani. Honum tókst að komast framhjá Dawson í vörninni og gaf boltann aftur á Kuyt sem þrumaði boltanum í netið framhjá Gomes. Staðan orðin 1-0 heimamönnum í vil og aðeins 6 mínútur liðnar af leiknum. Eftir að markið var skoraði tók við kafli í leiknum þar sem lítið reyndi á markverði beggja liða og fór leikurinn aðallega fram á miðjum vellinum þar sem hart var barist. Undir lok fyrri hálfleiks fengu leikmenn Tottenham aukaspyrnu sem Kranjcar tók. Hann gaf boltann inn í teiginn þar sem King náði til hans á endanum og reyndi að koma honum framhjá Reina. Dómarinn kaus þó að flauta aukaspyrnu á Crouch eftir baráttu hans við Kirgiakos en leikmenn Tottenham voru allt annað en sáttir með þessa dómgæslu og þá sérstaklega Crouch en endursýningar sýndu að Kirgiakos togaði hressilega í peysu Crouch og dró hann niður í grasið og hefði réttilega átt að dæma vítaspyrnu. Í uppbótartíma fengu leikmenn Liverpool gott færi eftir hornspyrnu en Bale varði á marklínu. Á hinum enda vallarins fékk Modric eitt besta færi Tottenham í fyrri hálfeik eftir gott samspil Jenas og Palacios. Reina náði þó að verja vel skot hans og því höfðu Liverpool menn forystu í hálfleik 1-0.
Strax á upphafsmínútum síðari hálfleiks skoraði Defoe mark eftir misskilning milli varnarmanns Liverpool og Reina. Markið var þó dæmt af þar sem aðstoðardómarinn flaggaði rangstöðu. Flestir vildu þó meina að sá dómur væri rangur þar sem samspil varnarmanns Liverpool og Reina hefði gert rangstöðu hans ógilda. En dómarinn var ekki á sama máli og markið dæmt ógilt. Eftir þetta fór að færast fjör í leikinn og mun fleiri marktækifæri litu dagsins ljós. Riera skallaði boltann í þverslánna og á hinum enda vallarins náði Jenas góðu skoti að marki, en Reina sá við honum. Þegar rúmlega klukkustund var liðin af leiknum gerði Harry sína fyrstu skiptingu, Hutton kom inná og Corluka fór útaf í hans stað. Stuttu síðar kom Keane einnig inná og Kranjcar fór af velli. Kuyt og Riera áttu ágætis skot að marki sem fóru framhjá og Hutton átti skot á mark Liverpool manna á hinum enda vallarins. Þegar um 10 mínútur voru til leiksloka gerði Harry síðustu skiptingu sína, King fór af velli og Bassong kom inná í hans stað. Leikmenn Liverpool sóttu stíft á lokamínútunum og Gomes varði meistaralega skot frá Ngog og Kirgiakos. Kuyt átti svo gott skot að marki sem fór rétt yfir markið. Í uppbótartíma varð Bassong svo fyrir því óláni að Howard Webb, dómari leiksins, dæmdi vítaspyrnu eftir brot hans á Ngog. Kuyt steig á vítapunktinn og skoraði af öryggi framhjá Gomes í markinu. Webb var þó ekki sáttur með spyrnuna þar sem leikmenn LIverpool voru komnir inn í teiginn áður en spyrnan var tekin og því þurfti Kuyt að endurtaka spyrnuna. Hann átti þó ekki í vandræðum með að skora úr síðari spyrnunni heldur og staðan því orðin 2-0 fyrir heimamenn. Ekki urðu mörkin fleiri og fóru Liverpool menn því með sigur að hólmi og hirtu öll þrjú stigin í mikilvægri baráttu um 4. sæti deildarinnar. Liverpool er nú einu stigi á eftir Tottenham.
Lið Spurs: Gomes, Corluka(Hutton), Dawson, King(Bassong), Bale, Modric, Jenas, Palacios, Kranjcar(Keane), Crouch, Defoe. Ónotaðir varamenn: Alnwick, Giovani, Rose, Pavlyuchenko.






