Spurs 0 – Hull 0

0
778

Tottenham tók á móti Hull í fyrsta deildarleiknum á nýju ári, en sem kunnugt er var leik liðsins um síðustu helgi frestað sökum veðurs. Leik Hull var sömuleiðis frestað svo að bæði liðin höfðu fengið 2 vikna frí frá leikjum. Hull þurfti nauðsynlega á stigum að halda enda í hörkubaráttu í botnsætum deildarinnar en sömuleiðis var nauðsynlegt fyrir leikmenn Tottenham að hala inn stig í baráttunni um meistaradeildarsætin. Þrátt fyrir næg marktækifæri í leiknum, aðallega hjá heimamönnum, náði hvorugt liðið að skora og lauk því leiknum með 0-0 jafntefli. Skiptu liðin því með sér stigunum úr þessari viðureign.

 

Nokkrir leikmenn Tottenham voru fjarverandi vegna meiðsla en Harry gat þó stillt upp nokkuð sterku liði. Í markinu stóð Gomes og vörnin fyrir framan hann var skipuð þeim Corluka, Dawson, Bassong og Bale. Á miðjunni léku þeir Modric, Huddlestone, Palacios og Kranjcar og frammi þeir Defoe og Keane. Á bekknum sátu þeir Alnwick, Naughton, Bentley, Jenas, Rose, Pavlyuchenko og Crouch.

 

Leikurinn fór rólega af stað og ekki var mikið um marktækifæri fyrsta hálftímann. Leikmenn Hull héldu sig aftarlega á vellinum og vörðust allir sem einn og það gerði leikmönnum Tottenham erfitt fyrir því illa gekk að skapa færi. Leikmenn Hull virtust taka sér nægan tíma í allar aðgerðir en þegar tæpur hálftími var liðinn af leiknum fékk dómarinn nóg og bókaði Barmby fyrir leiktöf. Við það virtust leikmenn Tottenham eflast og fór sóknarþunginn að aukast fyrir framan mark Hull manna. Litlu munaði að Huddlestone næði til boltans inni í teig eftir góða sendingu frá Keane en það tókst ekki. Stuttu síðar átti markvörður Hull glæsilega markvörslu í tvígang, fyrst varði hann skot Palacios hægramegin úr teignum. Hann náði þó ekki að halda boltanum og barst hann til Keane í miðjum teignum. Keane skaut að marki en einhvern veginn tókst markverði Hull, Myhill, að standa upp og verja skotið með olnboga sínum. Á 43. mínútu átti Kranjcar gott skot að marki en boltinn fór rétt framhjá. Á lokamínútum fyrri hálfleiks komst Defoe einn á móti markverði Hull en Myhill varði vel. Staðan því 0-0 í hálfleik en Tottenhamliðið þó mun líklegri til að skora.

 

Leikmenn Tottenham hófu seinni hálfleik á sömu nótum og þeim fyrri lauk. Sókn og aftur sókn. Á 48.mínútu vildu leikmenn Tottenham fá vítaspyrnu eftir að skot Bale hafnaði í hönd Andy Dawson, bróður Michael Dawson, en dómarinn dæmdi ekkert. Á 54.mínútu sýndi Myhill enn á ný meistaratakta í marki Hull eftir stórsókn frá Tottenham. Modric fékk boltann inni í teig og þrumaði að marki. Myhill varði boltann út í markteiginn þar sem Keane náði til boltans en Myhill náði að verja hjá honum, þrátt fyrir að vera enn liggjandi í grasinu. Þegar tæpar 60 mínútur voru liðnar af leiknum gerði Harry sína fyrstu skiptingu. Palacios fór af velli og Jenas kom inná í hans stað. Leikmenn Hull fengu svo tvö ágæt færi, bæði enduðu með skoti frá Barmby, fyrrum leikmanni Tottenham. Fyrst skaut hann í hliðarnetið og í seinna skiptið náði Dawson að kasta sér fyrir skotið. Stuttu síðar kom Crouch inná í stað Keane. Modric fékk svo ágætt færi þegar hann skallaði að marki eftir fyrirgjöf frá Crouch en Myhill var vel vakandi. Stuttu síðar fékk Modric annað færi en enn á ný varði Myhill vel. Þegar tæpar 80 mínútur voru liðnar af leiknum vildu leikmenn Tottenham aftur fá vítaspyrnu þegar Zayette virtist handleika boltann inni í teig, en dómarinn var ekki á sama máli. Modric átti svo þrumuskot að marki 5 mínútum síðar sem fór yfir markið. Crouch fékk svo dauðafæri þegar hann hoppaði manna hæstur inni í teig og skallaði fyrirgjöf Kranjcar í átt að markinu. En Myhill var enn og aftur rétt staðsettur og varði glæsilega.  Í uppbótartíma vildu leikmenn Tottenham enn einu sinni fá vítaspyrnu þegar Gardner braut á Crouch inni í vítateig Hull manna en dómarinn var greinilega ekki á því að gefa vítaspyrnu í þessum leik. Undir lok leiksins fékk Crouch svo ágætisfæri en þetta var án ef dagur Myhill í markinu og varði hann enn á ný. Lokatölur því 0-0 og mega Hull menn þakka markverði sínum fyrir stigið enda frammistaða hans hreint ótrúleg í þessum leik. Án efa var hann maður þessa leiks.

 

Lið Spurs: Gomes, Corluka, Dawson, Bassong, Bale, Modric, Huddlestone, Palacios(Jenas), Kranjcar, Keane(Crouch), Defoe. Ónotaðir varamenn: Alnwick, Naughton, Rose, Bentley, Pavlyuchenko.