Jafntefli gegn Sunderland

0
642

Tottenham tók á móti Sunderland í 12. umferð ensku úrvalsdeildarinnar á þriðjudagskvöldið. Leikmenn Tottenham sóttu stíft allan leikinn og máttu Sunderland menn þakka Gordon, markverði sínum, fyrir að vera enn inni í leiknum eftir klukkustundarleik, en hann gjörsamlega lokaði markinu. Modric, Bentley og Van der Vaart áttu allir fín færi en Gordon sá til þess að boltinn færi ekki í netið. Á 64. mínútu náðu leikmenn Tottenham hins vegar loksins að skora og voru það þeir Van der Vaart og Crouch að verki. Bale gaf sendingu fyrir markið sem Crouch skallaði niður fyrir fætur Van der Vaart og hann kom boltanum í netið og heldur hann því áfram þeirri tölfræði sinni að hafa skorað í hverjum einasta heimaleik sem hann hefur byrjað í liði Tottenham. En því miður var gleðin ekki langlíf því aðeins þremur mínútum síðar nýtti Gyan sér mistök varnarmanna Tottenham og skoraði jöfnunarmark Sunderland. Fleiri urðu mörkin ekki og liðin skiptu því með sér stigunum.

Lið Spurs: Gomes, Hutton, Gallas, Kaboul, Ekotto, Bentley, Huddlestone, Modric, Bale, Van der Vaart, Pavlyuchenko (Crouch 46). Ónotaðir varamenn: Cudicini, Bassong, Corluka, Jenas, Kranjcar, Palacios.