Tottenham tók á móti Blackburn á White Hart Lane í leik helgarinnar. Úrslitin hafa ekki verið þau bestu upp á síðkastið hjá Tottenham en nú var loks komið að sigurleik. Lokatölur leiksins voru 4-2 fyrir Tottenham og var það Gareth Bale sem kom Tottenham yfir í leiknum. Pavlyuchenko misnotaði svo vítaspyrnu og skaut framhjá úr færi þar sem hann var einn á móti markverði Blackburn, Paul Robinson. En Pavlyuchenko bætti fyrir mistök sín með marki fyrir hálfleikshlé og staðan því 2-0 í hálfleik. Í síðari hálfleik skoraði Crouch sitt fyrsta mark á tímabilinu í deildinni áður en Bale bætti við öðru marki sínum og fjórða marki Tottenham. Undir lok síðari hálfleiks náðu Blackburn menn að minnka muninn með mörkum frá Nielsen og Givet. Lokatölur 4-2 og mikilvæg þrjú stig í höfn hjá Tottenham.
Lið Spurs: Gomes, Hutton, Gallas, Kaboul, Ekotto, Van der Vaart (Palacios 85), Jenas, Modric, Bale, Pavlyuchenko (Sandro 89), Crouch. Ónotaðir varamenn: Cudicini, Bassong, Corluka, Bentley og Kranjcar.






