Sigur gegn Arsenal

0
649

Tottenham heimsótti erkifjendur sína í Arsenal á Emirates Stadium í stórleik helgarinnar. Tottenham hafði ekki unnið útileik gegn Arsenal í deildinni síðan árið 1993 og því alveg kominn tími á sigurleik. Gleðifréttir dagsins voru þær að Defoe var aftur kominn inn í hópinn eftir langvarandi meiðsli en hann byrjaði á bekknum. Útlitið var þó ekki gott fyrir Tottenham því strax á 9.mínútu komust Arsenal menn yfir með marki frá Nasri. Á 27.mínútu bættu Arsenal menn svo við öðru marki og að þessu sinni var það Chamakh sem skoraði framhjá Gomes. Chamakh fékk svo gott færi til að bæta þriðja markinu við undir lok fyrri hálfleiks en Kaboul sá við honum og staðan því 2-0 í hálfleik, heimamönnum í vil. Lennon fór af velli í hálfleik og Defoe kom inná í hans stað. En það var  Bale sem setti í gang ótrúlega endurkomu hjá liðinu. Van der Vaart gaf góða sendingu á Bale sem átti ekki í vandræðum með að koma boltanum framhjá Fabianski. Staðan orðin 2-1. Þegar síðari hálfleikur var u.þ.b. hálfnaður var aukaspyrna dæmd á Arsenal rétt fyrir utan teig. Van der Vaart tók spyrnuna og ætlaði sér að skjóta föstu skoti yfir vegginn. Fabregas lyfti hins vegar hönd sinn hátt upp í loft og varði boltann og dómarinn var ekki í vafa og dæmdi víti. Van der Vaart fór sjálfur á vítapunktinn og skoraði af öryggi. Leikurinn því orðinn jafn og æsispennandi. Bæði lið áttu ágæt færi til að stela sigrinum en að lokum var það Tottenham sem skoraði sigurmarkið þegar líða tók að lokum síðari hálfleiks. Bale var felldur á hægri kantinum og dómarinn dæmdi aukaspyrnu. Van der Vaart tók spyrnuna og spyrnti inn í teiginn. Þar hoppaði Kaboul manna hæstur og skallaði boltann í netið. Lokatölur voru því 2-3 Tottenham í vil og fyrsti útisigurinn í deildinni gegn Arsenal í 17 ár orðinn að veruleika við mikinn fögnuð stuðningsmanna Tottenham.

Lið Spurs: Gomes, Hutton, Gallas, Kaboul, Ekotto, Lennon (Defoe 46), Jenas, Modric, Bale, Van der Vaart (Palacios 87), Pavlyuchenko (Crouch 74). Ónotaðir varamenn: Cudicini, Corluka, Bassong og Bentley.