Manchester City gulltryggði sér sæti í Meistaradeildinni á næsta ári þegar Tottenham heimsótti liðið í leik sem upphaflega var frestað vegna þátttöku City í FA bikarnum. Liðin mættust á svipuðum tíma í fyrra en þá var það Tottenham sem tryggði sér Meistaradeildarsætið með 1-0 sigri með marki frá Peter Crouch. Í þetta skiptið var það City sem hirti öll þrjú stigin en það var þó einnig Peter Crouch sem skoraði sigurmarkið í þessum leik því hann varð fyrir því óláni að skora í eigið net eftir 30 mínútna leik. Manchester City tekur því þátt í Meistaradeildinni á næstu leiktíð þar sem liðið er nú 7 stigum fyrir ofan Tottenham og einungis 2 leikir eftir. Tottenham á þó í hörkubaráttu við Liverpool um fimmta sæti deildarinnar, en það gefur þátttökurétt í Evrópudeildinni.
Lið Spurs: Cudicini, Corluka, Dawons, Gallas (Kaboul 85), Rose, Lennon, Palacios (Pienaar 32), Sandro, Modric, Van der Vaart, Crouch (Defoe 78). Ónotaðir varamenn: Pletikosa, Bassong, Kranjcar, Pavlyuchenko.






