Vonir Tottenham um að enda í 4.sæti deildarinnar og komast í umspil um sæti í Meistaradeildinni dvínuðu talsvert um helgina þegar þeir tóku á móti Blackpool á White Hart Lane. Með sigri hefði liðið komist aðeins 4 stigum á eftir Manchester City og enn verið í baráttunni um 4.sætið. En Blackpool menn þurftu einnig á stigum að halda í fallbaráttunni og komust yfir í leiknum á 78.mínútu með marki úr vítaspyrnu frá Charlie Adam. Gomes varði vítaspyrnu frá Adam eftir að Dawson handlék boltann inni í teig, en fór svo sjálfur í klaufalega tæklingu sekúndubrotum síðar og dómarinn dæmdi aðra vítaspyrnu sem Adam skoraði úr. Staðan því 1-0 fyrir gestina. Defoe jafnaði leikinn á 88.mínútu og reyndu leikmenn Tottenham allt til að bæta við öðru marki, en viðbótartíminn var talsverður vegna tíma sem fór í aðhlynningu á Bale vegna meiðsla sem hann varð fyrir í leiknum. Það tókst þó ekki og lokatölur 1-1.
Lið Spurs: Gomes, Kaboul, Gallas, Dawson, Rose (Kranjcar 90), Van der Vaart, Sandro, Modric, Bale (Crouch 65), Defoe, Pavlyuchenko (Lennon 46). Ónotaðir varamenn: Cudicini, Corluka, Bassong, Jenas.






