Tottenham heimsótti lið Wigan í gær og unnu þar sinn þriðja sigur i röð í deildinni. Lokatölur urðu 1-2. Mörk Tottenham skoruðu VdV og Bale. Með þessum sigri er liðið komið upp í efri hluta deildarinnar og eiga frestaðan leik inni á móti Everton heima.
Harry Redknapp gerði tvær breytingar á liðinu sem sigraði Liverpool um síðustu helgi. Krancjar var meiddur og kom Sandro í liðið í hans stað og svo var Defoe veikur og kom VdV í liðið í hans stað.
Leikurinn í gær var ekki nema um þriggja mínútna gamall þegar fyrsta markið kom. Varnarmaður Wigan gerði slæm mistök og Adebayor náði boltanum af honum og lék inn í vítateig, þar lagði Adebayor boltann á VdV sem setti hann örugglega ofarlega í hornið 0-1 staðan. Tottenham voru sterkari aðilinn í þessum leik og á 23. mínútu var staðan orðin 0-2. Modric tók þá hornspyrnu á nærstöng þar sem Bale kom askvaðandi og stangaði boltann í fjærhornið, mjög vel gert. Tottenham menn fengu fleiri færi í fyrri hálfleik en náðu bara að setja tvö mörk og staðan því 0-2 þegar gengið var til leikhlés.
Eftir einungis 5 mínútna leik í síðari hálfleik minnkaði Wigan muninn í 1-2. Ekotto átti þá slæma sendingu út úr vörninni og Diame leikmaður Wigan fékk boltann við vítateigslínuna með bakið í markið, náði að snúa sér skemmtilega og setti boltann neðst í hornið , óverjandi fyrir Friedel í markinu. Tottenham menn spýttu í lófana og héldu áfram að gera sig líklega til að setja þriðja markið. Það var svo á 62. mínútu sem Wigan menn misstu mann útaf með tvö gul = rautt spjald. ( bæði spjöldin fékk viðkomandi leikmaður fyrir brot á Bale )
Leikurinn fjaraði út , en á lokakaflanum átti Kaboul skot í þverslá úr aukaspyrnu og Wigan fékk ágætis tækifæri undir lokin en léleg sending í lokin gerði út um þá skyndisókn.
Lið Tottenham í leiknum :
Friedel – Walker – Kaboul – King – Ekotto – Sandro ( Livermore 90 ) – Modric – Parker – Bale – VdV ( Giovani 78 ) – Adebayor
Varamenn :
Cudicini – Basson – Corluka – Giovani – Livermore – Townsend – Carroll.
Liðið lítur bara nokkuð vel út eftir erfiða byrjun … þrír sigrar í röð.
Í þennan leik vantaði marga sterka leikmenn svo það er ekki annað hægt en að vera bjartsýnn á framhaldið , því liðið á inni Lennon , Huddlestone , Defoe , Dawson , Krancjar svo einhverjir séu nefndir sem tóku ekki þátt í þessum leik.
BÓ






