Þriðji sigurleikurinn í röð

0
668

Tottenham heimsótti lið Wigan í gær og unnu þar sinn þriðja sigur i röð í deildinni.   Lokatölur urðu 1-2.  Mörk Tottenham skoruðu VdV og Bale. Með þessum sigri er liðið komið upp í efri hluta deildarinnar og eiga frestaðan leik inni á móti Everton heima.

Harry Redknapp gerði tvær breytingar á liðinu sem sigraði Liverpool um síðustu helgi.   Krancjar var meiddur og kom Sandro í liðið í hans stað og svo var Defoe veikur og kom VdV í liðið í hans stað.

van-der-vaart_2656807.jpgLeikurinn í gær var ekki nema um þriggja mínútna gamall þegar fyrsta markið kom.  Varnarmaður Wigan gerði slæm mistök og Adebayor náði boltanum af honum og lék inn í vítateig,  þar lagði Adebayor boltann á VdV sem setti hann örugglega ofarlega í hornið  0-1 staðan.  Tottenham voru sterkari aðilinn í þessum leik og á 23. mínútu var staðan orðin 0-2.  Modric tók þá hornspyrnu á nærstöng þar sem Bale kom askvaðandi og stangaði boltann í fjærhornið, mjög vel gert.  Tottenham menn fengu fleiri færi í fyrri hálfleik en náðu bara að setja tvö mörk og staðan því 0-2 þegar gengið var til leikhlés.

Eftir einungis 5 mínútna leik í síðari hálfleik minnkaði Wigan muninn í 1-2.  Ekotto átti þá slæma sendingu út úr vörninni og Diame leikmaður Wigan fékk boltann við vítateigslínuna með bakið í markið, náði að snúa sér skemmtilega og setti boltann neðst í hornið , óverjandi fyrir Friedel í markinu.   Tottenham menn spýttu í lófana og héldu áfram að gera sig líklega til að setja þriðja markið.  Það var svo á 62. mínútu sem Wigan menn misstu mann útaf með tvö gul = rautt spjald.  ( bæði spjöldin fékk viðkomandi leikmaður fyrir brot á Bale )

Leikurinn fjaraði út , en á lokakaflanum átti Kaboul skot í þverslá úr aukaspyrnu og Wigan fékk ágætis tækifæri undir lokin en léleg sending í lokin gerði út um þá skyndisókn.

Lið Tottenham í leiknum :

Friedel  – Walker – Kaboul – King – Ekotto – Sandro ( Livermore 90 ) – Modric – Parker – Bale – VdV ( Giovani 78 ) – Adebayor

Varamenn :

Cudicini – Basson – Corluka – Giovani – Livermore – Townsend – Carroll.

Liðið lítur bara nokkuð vel út eftir erfiða byrjun …  þrír sigrar í röð.

Í þennan leik vantaði marga sterka leikmenn svo það er ekki annað hægt en að vera bjartsýnn á framhaldið , því liðið á inni  Lennon , Huddlestone , Defoe , Dawson , Krancjar svo einhverjir séu nefndir sem tóku ekki þátt í þessum leik.